Hótel Royal Lancaster er gott 4ra stjörnu hótel við Hyde Park og í 5 mín göngufæri frá Marble Arch og Oxford stræti. Sameiginlega aðstaða er til fyrirmyndar og hótelið valið besta hótelið í Bretlandi síðustu 4 árin fyrir framúrskarandi aðstöðu og þjónustu fyrir fundarhöld og hópa.
The Kingsley hét áður Thistle Bloomsbury og er í hjarta Bloomsbury hverfisins í London. Árið 2008 og fram á sumar 2009 var hótelið endurnýjað "hólf í gólf" og er í dag einstaklega fallegt hótel og huggulegt, enda glansandi nýtt og fínt.>/P>