ALMENNT
The Kingsley hét áður Thistle Bloomsbury og er í hjarta Bloomsbury hverfisins í London. Árið 2008 og fram á sumar 2009 var hótelið endurnýjað "hólf í gólf" og er í dag einstaklega fallegt hótel og huggulegt, enda glansandi nýtt og fínt.>/P>
AÐSTAÐA
The Kingsley Brasserie & Bar býður matseðil með all frá ekta enskum mat eins og "Fish & Chips" að léttum og ljúffengum réttum á við "Red Pesto & Crème Fraiche Linguine with Chicken".
VISTARVERUR
138 "Standard" herbergi og 65 "executive" herbergi, fallega innréttuð með öllum þægindum. Herbergin eru með gervihnattasjónvarpi, síma,buxnapressu, hárþurrku, öryggishólfi og skrifborði. Greiða þarf fyrir afnot af þráðlausri internettengingu.>/P>
STAÐSETNING
Í Bloomsbury hverfinu. Ýmsir áhugaverðir staðir eru í göngufæri eins og "The British Museum" Covent Garden, Oxford Stræti og helsta leikshúshverfi Lundúnaborgar the West End. Næsta lestarstöð er Holborn (Piccadilly og Central Line), en þangað eru um 300 metrar. St Pancras International, Kings Cross og Euston Railway Stations eru einnig í göngufæri.