Royal Lancaster

Hleð hótelmynd
    Færa uppFæra nipur

    Hótel Royal Lancaster er gott 4ra stjörnu hótel við Hyde Park og í 5 mín göngufæri frá Marble Arch og Oxford stræti. Sameiginlega aðstaða er til fyrirmyndar og hótelið valið besta hótelið í Bretlandi síðustu 4 árin fyrir framúrskarandi aðstöðu og þjónustu fyrir fundarhöld og hópa.

    ALMENNT
    Hótel Royal Lancaster er gott 4ra stjörnu hótel við Hyde Park og í 5 mín göngufæri frá Marble Arch og Oxford stræti. Sameiginlega aðstaða er til fyrirmyndar og hótelið valið besta hótelið í Bretlandi síðustu 4 árin fyrir framúrskarandi aðstöðu og þjónustu fyrir fundarhöld og hópa.>/P>
    AÐSTAÐA
    Gestamóttakan, bar og tveir veitingastaðir, báðir í sérflokki. Nipa, sem er thailenskur og Island Restaurant & Bar, nýtískulegur og smart með gluggum frá gólfi upp í loft og útsýni yfir Hyde Park. Bar og setustofa er opin fyrir létta rétti og herbergjaþónustan er ávallt til reiðu.>/P>
    VISTARVERUR
    Úrval Útsýn er með "Superior" herbergi á samningi við hótelið. Útsýni er magnað af herbergjum, sem eru frá 13.hæð upp á 17. hæð. Herbergi eru einkar þægileg með ljósum eikarinnréttingum. Herbergi eru búin helstu þægindum s.s. gerfihnattasjónvarpi, smábar, skrifborði, þar em hægt er að tengja fartölvu og fá aðgag að interneti. Á baðinu eru snyrtivörur frá Gilchrist & Soames. Herbergin eru klædd marmara og með kraftmikilli sturtu.>/P>
    STAÐSETNING
    Marble Arch og Oxford Street stræti eru í göngufæri ( 5 mín) og um 10 mínútur tekur að aka til Knightsbridge og þar með að hinu glæsilega vderslunarhúsi Harrods. Lestarstöðin Lancaster Gate (Central Line) er við hótelið. >/P>


    Powered by ODIN