Gott að vita um London
Fjarlægðir
Frá Gatwick flugvelli eru mjög góðar lestar og rútusamgöngur til miðborgar London.
Fljótlegasta leiðin er Gatwick Express lestin og kostar fargjaldið báðar leiðir um 29 pund, lest fer á 15 mínútna fresti frá morgni til kvölds og fer þá beint á Victoria lestarstöðina, ferðin tekur um 30 mínútur.
Nánari upplýsingar á vef Iceland Epress og Gatwick Express.
Flugtími
Flug frá Íslandi til og frá London tekur um þrjár klukkustundir.
Gjaldmiðill
Gjaldmiðillinn er sterlingspund (GBP). Reiknaðu út gengið á Oanda.
Greiðslukort
Því sem næst alls staðar er hægt að greiða með kreditkortum. Hraðbankar eru víða um borgina.
Handfarangur
Flugmálastjórn hefur gefið út bækling með reglum um
handfarangur.
Íþróttir
Mikið spilaður fótbolti í Englandi og er hægt að taka lest til flestallra áfangastaða þar sem stæðstu leikirnir eru. Stæðsti fótboltaleikvangurinn í London er svo Wembley sem rúmar um 90.000 manns sæti og er þar með næststærsti leikvangur heims talið í fjölda sæta og sá stærsti ef miðað er við fjölda sæta undir skýli.
Landið
London er höfuðborg Englands og oft talað um hana sem höfuðborg Evrópu. Í borginni og nágrenni hennar búa um 7,5 miljónir manna.
Leigubílar
Það er auðvelt að ná í leigubíla í London. Það eru víða leigubílastöðvar í miðborginni og oftar en ekki eru bílar til staðar.
Rafmagn
220 - 240 volt.
Tímamismunur
Frá síðustu helgi í október gengur vetrartími í garð og þá er sami tími á Íslandi og í Englandi.
Á sumartíma, sem tekur gildi síðustu helgina í mars er England einni klukkustund á undan okkur. Þetta þýðir að þegar klukkan er 12:00 á Íslandi er hún 13:00 í Englandi.
Veitingastaðir
Fleiri þúsund kaffihús og veitingastaðir eru í borginni, í öllum verð- og gæðaflokkum.
Verslun
Margir af helstu tískuhönnuðum í heimi er í London og er hægt að fá flestöll helstu tískumerkin í miðborg London. Helsta verslunargatan er svo Oxford street og eru þar H&M, Debenhams ofl. Notting Hill er svo skammt undan en þar er mjög skemmtilegur útimarkaður þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Mikið er af verslunum og mörkuðum í London og er hér hægt að fá nánari upplýsingar ásamt kortum af þeim á vefnum Street Sensation
Vín
Hægt er að fá dýrindis vín á mörgum veitingastöðum í London eins og t.d. Gordon's Wine Bar, 47 Villiers street.
Leikhús í London
Stórskemmtilegt að fara í leikhús í London og úr mörgu að velja, söngleikir, sakamálaleikrit, gamanleikrit, leikrit Shakespeare, óperur o.m.fl. Við mælum með því að fara á Leicester Square þar sem hægt er að fá miða á allar helstu sýningarnar.