Malmö
Malmö hefur gengið í gengum miklar breytingar á skömmum tíma og farið frá því að vera iðnaðarborg í að vera miðstöð menningar- og mennta. Skömmu fyrir aldamótin var stofnaður þar háskóli og þegar Eyrasundsbrúin opnaði fyrir tengingu til Danmerkur árið 2000 tók hún að springa út af alvöru.
Malmö er í Svíþjóð, en hefur í gegnum tíðina tilheyrt Damörku og vilja sumir meina að þar sé að finna það besta úr báðum heimum.
Malmö er mátulega stór - þar búa um 270 þúsund manns - og mjög falleg, með torg og steinlagðar göngugötur í miðborginni. Miðjan er Stortorget, sem er um 5 mínútna gang frá aðaljárnbrautarstöðinni. Þaðan liggur 2 km göngugata að Trianglen, en það er lítið torg og samnefnd verslunarmiðstöð. Um miðbik göngugötunnar er Gustav Adolfstorg. Víðs vegar um borgina eru auk þess litlir og skemmtilegir almenningsgarðar, en Malmö er gjarnan kölluð Borg garðanna.
Ekki missa af hæstu byggingu Svíþjóðar, listaverkinu Turning Torso, sem arkitektinn Santiago Calatrava hannaði.
Íbúarnir eru mjög vingjarnlegir og gestrisnir, þar er mikið af góðum veitingastöðum, gott að versla og verðlag er heldur ódýrara en í Danmörku.
Flogið verður til Kaupmannahafnar og ekið yfir hina mikilfenglegu Eyrasundsbrú yfir til Svíþjóðar, en aðeins er um 20 mínútna lestarferð til Malmö frá Kastrup-flugvelli.
Skoða nánar
Sjá líka
Malmö
Malmö á vef ferðamálaráðs Svíþjóðar
Veitingastaðir
Verslanir
Út á lífið
Veður í Malmö
Turning Torso