Kristján Bragason
Kristján Bragason er fæddur og uppalinn í Reykjavík og útskifaðist úr Menntaskólanum við Sund vorið 1989. Eftir menntaskóla lá leiðin í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og í svo í framhaldsnám í vinnumarkaðsfræðum í Warwick háskóla í Englandi. Eftir námið tóku við störf fyrir verkalýðshreyfinguna og starfaði Kristján m.a. sem framkvæmdastjóri hjá Starfsgreinasambandi Íslands.
Kristján hefur búið í Malmö í rúmlega fimm ár þar sem eiginkona hans Margrét Leósdóttir hefur lagt stund á sérfræðinám í hjarta- og lyflækningum. Féllu þau hjónin kylliflöt fyrir borginni, enda er mikil gróska og uppbygging á svæðinu og hefur nálægðin við Kaupmannahöfn yfir Eyrarsundsbrúna fengið Malmö til að blómstra á síðustu árum.
Fljótlega eftir að Kristján fluttist til Malmö ákvað hann að bæta við sig framhaldsgráðu í viðskiptafræði við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn. Eftir MBA námið réð hann sig til starfa hjá Landsbanka Íslands þar sem hann hefur starfað sem sérfræðingur í norrænum fjármálamörkuðum. Eftir mikil ferðalög síðustu fjögur árin ákvað Kristján í maí að nú væri komið nóg af flugferðum á milli Íslands og Kaupmannahafnar. Kristján ætlar enn á ný að setjast á skólabekk og mun hann leggja stund á nám í lýðheilsufræðum við háskólann í Malmö frá og með haustinu.
Ferðalög hafa lengi verið eitt af helstu áhugamálum Kristjáns og þá ekki síst borgarferðir og hefur hann heimsótt þær ófár í gegnum tíðina. Önnur áhugamál eru stjórnmál, samfélagsmál, menning, listir, golf og langhlaup, en Kristján ætlar að hlaupa New York maraþonið í nóvember.