ALMENNT
Quality Konserthuset er nútímalegt 3* hótel í miðbæ Malmö. Hótelið er í samtengdri byggingu við Konserthöllina í Malmö og í 15 mín. gangi frá Stóratorgi.
AÐSTAÐA
Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn, góð sameiginleg aðstaða er á hótelinu. Á 2. hæð er bjartur, nútímalegur og flottur veitingastaður, bar og morgunverðasalur. Þaðan er innangegnt í bókasafn með sjónvarpi og nuddstól. Stór og góður salur er á hótelinu sem tekur allt að 170 manns og tilvalinn fyrir smærri og stærri hópa. Hurð tengir salinn við Konserthöllina og er hægt að opna þar á milli og er þá hægt að taka hópa allt upp í 1200 manns.
Eftir skoðunarferðir dagsins er svo hægt að láta fara vel um sig í nuddpotti og saunu hótelsins.
VISTARVERUR
Á hótelinu eru 154 vel búin herbergi, innréttuð í ekta skandinavískum stíl. Herbergin eru með gervihnattasjónvarpI, útvarpI, síma, hárþurrku, smábar, ísskáp, te og kaffivél, straujárni og buxnapressu. Öll herbergin með parketi á gólfi og internettengingu.