Scandic Saint Jorgen

Hleð hótelmynd
    Færa uppFæra nipur

    Gott 4ra stjörnu hótel í hjarta Malmö, við Gustaf Adolfs torg, sem er við miðju göngugötuna í Malmö. Gegnt hótelinu er hin vinsæla verslun H&M. Skínandi fínt og huggulegt hótel. Hentar vel bæði fyrir hópa og einstaklinga.

    ALMENNT

    AÐSTAÐA
    Gestamóttakan er rúmgóð og snyrtileg með setustofu, bar og veitingastað, sem er vinsæll meðal bæði gesta og gangandi.

    VISTARVERUR
    Herbergi eru rúmgóð, oft með litlum gangi, eða forstofu. 20 herbergi eru í svokölluðum “cabin” stíl og þau eru gluggalaus. Í stað glugga eru gerfigluggar með sandblásnu gleri og ljósi á bak við, þannig að herbergi eru mjög björt. Þessi herbergi eru öll nýuppgerð og mjög falleg, t.d. með flatskjá. Hótelið aðskilur ekki í tölvukerfi sínu, þannig að allir gefa fengið svona herbergi. Parket á öllum gólfum og huggulegir gangar. Frítt þráðlaust internet á herbergjum.

    Powered by ODIN