Gott að vita um Malmö
Borgin
Malmö er
þriðja stærsta borg Svíþjóðar og er í suður Svíþjóð. Efnahagslíf Malmö einkendist lengi af þungaiðnaði og ekki síst skipasmíði þar sem stærst og frægast var Kockums.
Stór hópur Íslendinga fluttist búferlum til Malmö í atvinnuleit í lok sjöunda og byrjun áttunda áratugs síðustu aldar, fóru margir þeirra í störf hjá Kockums. Mjög margir þeirra hafa ílengst og er fjölmenn nýlenda Íslendinga og athafnasamt Íslendingafélag í borginni.
Malmö var fyrrum kölluð Málmhaugar á íslensku.
Þar sem borgin er syðsti bær í Svíþjóð er skemmra þaðan til ítölsku borgarinnar Mílanó en nyrstu sænsku borgarinnar Kiruna.
Rétt eins og í Lundi eru göturnar í Malmö hellulagðar og gefur það skemmtilegan miðaldarbrag á bæinn. Á „Stortorget“ sem ber nafn með rentu, er fallegur gosbrunnur og við það stendur Rådhuset sem byrjað var að byggja 1546. Frá Stortoget liggur göngugatan og helsta verslunargata borgarinnar Södergatan.
Samgöngur
Flogið er til Kaupmannahafnar. Þegar komið er á Kastrup flugvöll og búið að sækja farangurinn, er gengi í átt að skiltii sem á stendur „Trains“. Þar eru keyptir miðar í lestina yfir Eyrarsund. Farið er niður á lestarpallinn, þar em lestar ganga á milli frá Kastrup og Malmö á 20 mínútna fresti. Lestin fer um Eyararsundsbrúna, sem var vígð 1. júlí árið 2000 og er 8 kílómetra löng.
Fargjaldið kostar SEK 128 á mann báðar leiðir, eða um 2000 krónur. Ferðin tekur um 20 mínútur og er farið úr lestinni á Aðaljárnbrautarstöðinni í Malmö.
Flugtími
Flug frá Íslandi tekur um 3 klukkustundir.
Gjaldmiðill
Gjaldmiðillinn er sænsk króna (SEK). Reiknaðu út gengið á Oanda.
Greiðslukort
Því sem næst alls staðar er hægt að greiða með kreditkortum. Hraðbankar eru víða um borgina.
Handfarangur
Flugmálastjórn hefur gefið út bækling með reglum um
handfarangur.
Leigubílar
Það er auðvelt að ná í leigubíla í Malmö, en varast þarf óprúttna leigubílsstjóra sem taka fast SEK 250 fyrir skutl á hótel, meðan réttur taxti er 80 SEK.
Leigubílar, sem á að vera óhætt að taka eru: TAXI KURIR, TAXI SKANE og 979797.
Rafmagn
220 - 240 volt.
Tímamismunur
Frá síðustu helgi í október þegar vetrartími gengur í garð er tímamismunurinn 1 klst.
Á sumartíma, sem tekur gildi síðustu helgina í mars er Svíþjóð tveimur klukkustundum á undan okkur. Þetta þýðir að þegar klukkan er 12:00 á Íslandi er hún 14:00 í Svíþjóð.
Veitingastaðir
Mörg hundruð kaffihús og veitingastaðir eru í borginni í öllum verð- og gæðaflokkum.
Verslun
Úrval verslana er við göngugöturnar. Tískufatnaður, gler og postulín, listmunir, bækur, húsgögn, íþróttavörur , útilífsbúðir og margt margt fleira. Fjöldi verslunarmiðstöðva er í borginni og a.m.k. tvær í miðborginni (annað við hliðina á hótel Hilton city).
Meira um verslanir í Malmö