Ítölsku Alparnir, einstök upplifun
Plúsferðir bjóða upp á beint flug til Verona á Ítalíu, en þar er stutt í öll helstu skíðasvæðin sem Alparnir hafa að geyma.
Flug til og frá Verona, verð frá aðeins:
39.000 KR.
Við bjóðum upp á akstur til Madonna di Campiglio og Selva val Gardena, en þau eru einmitt vinsælustu skíðasvæðin í Ítalíu. Hvort sem um er að ræða skíðakempur eða fólk sem er að fara í fyrsta sinn á skíði, finna allir brekkur við sitt hæfi í Ölpunum. Gott veður, nægur snjór, frábærar brekkur, ítölsk matargerð og skemmtilegur félagsskapur í heilnæmu fjallalofti Alpanna, er eitthvað sem allir ættu að upplifa

Birna Haraldsdóttir er fararstjóri í Madonna
Madonna di Campiglio er einn þekktasti skíðabær Ítalíu. Úr miðbænum er stutt í lyftur og kláfa og tekur skamman tíma að komast upp í skíðalöndin ofan við bæinn. Allir geta fundið brekkur við sitt hæfi í bænum og kostur að það er aldrei langt að fara, hvort sem brekkurnar eru rauðar, bláar eða svartar.
Aðstaða er góð fyrir snjóbrettafólk og má þar sjá leikna brettamenn takast á loft frá stökkpöllum, sem búnir hafa verið til úr snjónum, enda nóg af snjó í Madonna.
Ursus, bretta og palla garðurinn (Ursus Snowpark) er með þeim stærstu í Evrópu og þar er hægt að vera í heila viku og læra eitthvað nýtt á hverjum degi.

Bjarni Freyr er fararstjóri í Selva
Selva Val Gardena Selva Val Gardena er hluti af hinu stórbrotna svæði, sem kallast Dolomiti Superski og er talið eitt besta og stærsta skíðasvæði heims.
Selva er fallegt fjallaþorp, þar sem ægifagrir tindar Dólómítanna bera við dimmbláan himininn, sem oftast er skafheiður enda er svæðið einkar sólríkt.
Líflegur bær þar sem heimamenn taka vel á móti skíðamönnum á hinum fjölmörgu krám bæjarins með tónlist og ljúffengum drykkjum. Vinsælir "après-ski" staðir eru Laurin Keller og Luis Keller við aðalgötuna í bænum. Fínustu kaffihús bjóða upp á ilmandi kaffi, eða heitt súkkulaði og girnilegar kökur með þeyttum rjóma.
Athugið að ef þið viljið bóka akstur þá skuluð þið hafa samband við okkur í síma 535-2100 og við bætum honum við bókunina.
Akstur til og frá Madonna eða Selva 6000 kr. aðra leið
Dagsetningar í vetur
4.febrúar 2012
18.febrúar 2012
Sjá einnig:
Skíðafæri og veður í Madonna di Campiglio
Vefmyndavél á torgi Madonna di Campiglio
Ferðamálavefur Madonna Di Campiglio