Benidorm

Hvíta ströndin - einn allra vinsælasti sólarstaður Evrópu

Þangað fjölmenna íbúar Evrópu til að hvílast, njóta lífsins og gleðjast.

Hvítar strendur með fagurbláu hafinu á sólríkum sumardögum eiga engan sinn líka.

Fjallgarðurinn fyrir ofan ströndina gerir það að verkum að sjaldan rignir og á fáum stöðum á Spáni er jafn sólríkt.

Umhverfis Benidorm eru óþrjótandi möguleikar á ferðalögum um héruð og sveitir sem eru umvafin einstakri náttúrufegurð.

Á Benidorm er hægt að sameina óendanlega fjörugt strandlíf og óviðjafnanlegt næturlíf - þangað flykkist fólk til að njóta tilverunnar, hvílast og skemmta sér.

Gott að vita um Benidorm


Isla Benidorm

Sagan segir að eitt sinn hafi búið undur falleg konungsdóttir á Benidorm, sem tröllskessa nokkur fékk augastað á fyrir hönd sonar síns. Dag nokkurn tók tröllskessan sig til og rændi konungsdótturinni fögru. Konungurinn harmi sleginn, hét þá að gefa konungsdóttirina þeim sem gæti bjargað henni. Ungur og hraustur maður lagði til atlögu og tókst að flýja með hana í átt til strandar. Þegar tröllskessan uppgvötaði hvarf hinnar fögru konungsdóttur hélt hún á eftir þeim og þegar hún kom auga á þau þar sem þau voru komin alla leið niður á strönd Benidorm, varð hún svo reið að hún reif bút úr fjallinu fyrir ofan Benidorm og henti á eftir þeim en hitti ekki.

Búturinn lenti út á sjó og myndar nú Benidorm eyju. Enn má sjá skarðið í fjallinu eftir þessa skapvonsku kerlingarinnar.


Meira um Benidorm

http://www.benidorm.com/


Akstur til og frá flugvelli í Alicante

Plúsferðir bjóða uppá rútuferðir til og frá flugvelli í Alicante á miðvikudögum í sumar. Akstur þarf að bóka og fullgreiða áður en lagt er af stað í ferðina.

Á öðrum dögum er hægt að taka flugvallarútuna sem gengur á klukkutíma fresti á milli Alicante flugvallar og Benidorm.
Sjá nánari tímasetningar og kaup á rútumiðum hjá: http://www.alsa.es/


Powered by ODIN