Flamingo Benidorm

_DSF4353.jpg
Hleð hótelmynd
Færa uppFæra nipur

Flamingo Benidorm hótelið er þægilegt 3 stjörnu íbúðarhotel í miðborg Benidorm. Íbúðir með einu svefnherbergi þar sem "allt er innifalið".

UPPLIFUN
Flamingo Benidorm hótelið er einföld 3 stjörnu gisting í miðborg Benidorm. Í hótelinu eru 200 rúmgóðar íbúðir, allar með góðum svölum sem snúa út í sundlaugargarðinn og jafnframt með útsýni yfir Benidorm. Sundlaugin er stór og sundlaugarsvæðið rúmgott. Skemmtidagskrá er í boði bæði fyrir alla aldurshópa.  Barnadagskrá er bæði um daginn og á kvöldin. Aðgangur að interneti er í gestamóttöku. Þeir sem dvelja á Hótel Flamingo Benidorm eru með “allt innifalið” sem þýðir allar máltíðir, kaffi og kökur milli mála , ís fyrir alla og allir drykkir. Hótelið er ágætlega staðsett, fjarlægð á ströndina er 1000 metrar og 700 metrar í hjarta Benidorm.  Hótelið hentar ungu fólki.  Líflegt er bæði á hótelinu og í næsta nágrenni.

Akstur til og frá flugvelli erlendis
Sumarferðir bjóða uppá akstur milli Alicante flugvallar og hótela á Benidorm á öllum flugdögum yfir sumartímann. Ef ekki fæst næg þáttaka áskiljum við okkur rétt á því að fella aksturinn niður. Farþegar verða látnir vita með 7 daga fyrirvara ef um slíkt er að ræða.

 


VISTARVERUR
Íbúðirnar eru einfaldar en þægilegar með svefnherbergi og setustofu. Allar með loftkælingu. Við mælum með að fara á heimasíðu hótelsins http://www.marconfort.com.til að fá frekari upplýsingar.
  • Address: C/ Marbella 2 Benidorm Spain
  • Heimasíða:


Powered by ODIN