Snyrtilegt og vel staðsett hótel aðeins 600 metra frá Levante ströndinni. Hótelið var allt uppgert árið 2006. Hótelið er vel búið og má þar m.a. finna leikastöðu fyrir börnin, bowling flöt, í sundlauginni er sér aðstaða fyrir börnin auk þess er skemmtidagskrá fyrir börn og fullorðna. Á hótelinu eru 135 herbergi. Herbergin eru loftkæld. Ekki er minibar á herbergjunum. Fyrir þá sem ekki vilja missa af því sem er að gerast í heiminum er internet aðgangur á hótelinu. Hér stendur íslenskum ferðalöngum svo sannarlega hagstæður gistivalmöguleiki til boða.