Hotel Villa del Mar er gott 4 stjörnu hótel staðsett alveg við Poniente ströndina. Beint aðgengi frá hótelinu út að strönd gegnum undirgögn. Aðeins er um 200 metra gangur inn í gamla miðbæinn. Á hótelinu er góð sundlaug og barnalaug. Á hótelinu er veitingastaður, bar/setustofa og bar við sundlaugarbakkann. Allt fæði og innlendir drykkir eru innifaldir í verðinu. Fjölbreytt skemmtidagskrá er á hótelinu. Gestir geta snætt mat á öðrum "Magic" hótelum í nágrenninu og er það innifalið í gjaldinu. Hótelið hefur nýlega verið algjörlega tekið í gegn.
Á hótelinu eru 107 herbergi, öll vel búin helstu þægindum, síma, sjónvarpi og loftkælingu. Þar er tvíbreytt rúm ásamt svefnsófa sem rúmar 2.