Vel staðsett 3 stjörnu hótel í gamla bænum á Benidorm, milli Levante og Poniente strandarinnar í Marina Baja hverfinu um 250 m á Ponienteströndina. Á hótelinu er bar og veitingastaður sem hefur uppá að bjóða mikið úrval rétta. Sólbaðsaðstaða og sundlaug upp á þaki hótelsins með barnalaug. Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn og þar er nýtískuleg setustofa með leikjaborðum og sjónvarpi.
Vistarverur
Hótel herbergin eru 112, vel búin með baðherbergi, loftkælingu, síma, sjónvarpi og svölum. Herbergin taka 2 en möguleiki er á aukarúmi fyrir 3ja aðila, einnig boðið uppá einstaklingsherbergi en biðja þarf um það sérstaklega. Ekki er smábar inná herbergjunum en hægt er að leigja hann í gestamóttöku og kostar vikan um 20 evrur.
Akstur: Boðið er uppá akstur milli Alicante flugvallar og hótela á Benidorm á öllum flugdögum. Ef ekki fæst næg þátttaka áskiljum við okkur rétt á því að fella aksturinn niður. Farþegar verða látnir vita með 7 daga fyrirvara ef um slíkt er að ræða.
- Address: PLAZA DE ESPAÑA S/N
03500 BENIDORM
SPAIN
- Heimasíða:
Bygging
- Fjöldi herbergja (114)
- Fjöldi hæða (6)
- Stjörnur (3)
- Byggt árið (2005)
- Gestamóttaka (Já)
- Lyftur (true)
Aðstaða
- Internet aðgangur (Já)
- Veitingastaður (Já)
- Billjarð (Já, lítil)
- Skemmtidagskrá (Já)
- Bar (true)
Annað
- Fjarlægð frá strönd (250 m)
Vistarverur
- Gervihnattasjónvarp (Já)
- Öryggishólf (Já)
- Svalir/Verönd (Já)
- Sími í herbergi (Já)
- Loftkæling (Já)
- Minibar (Nei, hægt að leigja)