Gemelos XXII - Benidorm

gem1.jpeg.jpg
Hleð hótelmynd
Færa uppFæra nipur

Nýlegar og glæsilegar íbúðir með frábærri staðsetningu, hentar fjölskyldum einkar vel.

Gemelos 22 er flaggskip Gemelos hótelkeðjunar og er það nýjasta og jafnframt það skemmtilegasta í þeirra keðju. Allar íbúðirnar voru teknar í notkun í apríl 2003.


VISTARVERUR
Íbúðirnar eru með einu eða tveimur svefnherbergjum og eru mjög vel útbúnar. Allar íbúðir eru með loftkælingu og stórum og góðum svölum, eldhúsið er vel búið og er þvottavél inni í þvottaherberginu. Sjónvarp er í öllum íbúðum, en greiða þarf fyrir notkun á því, 1 EUR á klukkustund. Þrif á íbúðunum eru einu sinni á viku, og skipt á rúmum og handklæðum einu sinni á viku. Greiða þarf tryggingargjald 100 evrur við komu og fæst það endurgreitt við brottför, reynist allt óskemmt. Hægt er að fá barnarúm, en panta þarf þau sérstaklega við komuna á hótelið. Gjald fyrir barnarúm er 3 evrur á dag og greiða þarf tryggingagjald 20 evrur.

 

ATH. Íbúðir okkar eru á 17. hæð eða ofar.


AKSTUR

Boðið er uppá akstur milli Alicante flugvallar og hótela á Benidorm á öllum flugdögum yfir sumartímann. Ef ekki fæst næg þátttaka áskiljum við okkur rétt á því að fella aksturinn niður. Farþegar verða látnir vita með 7 daga fyrirvara ef um slíkt er að ræða.

ATH. Þeir farþegar sem taka ekki akstur með fararstjórum á Gemelos 22 þurfa að sækja lykilinn á hótel Buenavista.

AÐSTAÐA

Sundlaugaraðstaðan er skemmtileg, hótelið hefur bæði inni- og útisundlaug, tennisvelli og góðan garð. Útsýnið frá íbúðunum er mjög skemmtilegt. Tryggingagjald er um 30 evrur sem fæst endurgreitt þegar sólbekknum er skilað.

Staðsetningin AVDA LATMELLA DE MAR, sem er á Levante svæðinu um það bil 500 metra frá ströndinni, er frábær með tilliti til veitingastaða og verslana enda stutt í allt. Engin gestamóttaka er í húsinu, en húsvörður er á svæðinu allan sólarhringinn.


Okkar Mat

Nýjar og glæsilegar íbúðir með frábærri staðsetningu nálægt Levante ströndinni (Rincón de Loix). Hentar öllum vel. Stór og góður sundlaugagarður. ATH: Gestir þurfa að yfirgefa íbúðir kl. 10 á brottfarardag

  • Address: AVDA ATMELLA DE MAR S/N Benidorm, Spánn ******************ATH: Gestir þurfa að yfirgefa íbúðir kl. 10 á brottfarardag.************
  • Heimasíða:


Powered by ODIN