Gran Hotel Bali La Cala

Gran Hotel Bali hefur svo sannarlega slegið í gegn. Hótelið er án vafa eitt glæsilegasta hótel á Costa Blanca ströndinni. Hótelið er nýlegt 4 stjörnu drauma dvalarstaður sem bíður upp á flest það sem við viljum að sé til staðar til að gera sumarleyfið að ómetanlegri upplifun.

Hótelgisting á La Cala

Gran Hotel Bali sló svo sannarlega í gegn sl. sumar.  Hótelið er án vafa eitt glæsilegasta hótel á Costa Blanca ströndinni. Hótelið er nýtt 4 stjörnu drauma dvalarstaður sem bíður upp á flest það sem við viljum að sé til staðar til að gera sumarleyfið að ómetanlegri upplifun.

Hótelið skiptist í tvær byggingar, sem hvor um sig býður upp á stórbrotið útsýni. Það er staðsett í bænum Cala De Finestrat er í næsta nágrenni við Benidorm, með yfirsýn yfir sjóinn og í 5 mínútna göngufjarlægð frá einni af fallegustu ströndum svæðisins.  Staðsetning hótelsins er því í takt við óskir mjög margra. Það býður upp á rólegt umhverfi  til þess að fjölskyldur geti notið þess að vera saman, en er um leið í seilingarfjarlægð frá  veitinga og kaffihúsum og iðandi mannlífi.
Skemmtigarðurinn Terra Mitica er í allra næsta nágrenni.        

Gistingin
Herbergin eru með tveimur stórum rúmum, auk sófa sem nýtist vel sem viðbótar gisting fyrir börn eða unglinga. Öll tveggja manna herbergin eru með svölum sem snúa að strönd og jafnframt út að sundlaugargarðinum.  Ath. einstaklingsherbergi geta verið án svala.  Herbergin eru ríkulega útbúin, innréttingar allar nýtiskulegar, öll herbergi eru með loftkælingu, sérhita, sjónvarpi, og öryggishólfi.  Öllum herbergjum fylgir lítill ískápur sem gestir okkar hafa algjörlega til eigin nota hvort sem er til að kæla drykkjarföng eða annað sem henta þykir.

Baðherbergin eru ríkulega útbúin, með háþurrku og öllum hreinlætisvörum sem tilheyra alvöru 4 stjörnu hóteli.
Daglega er herbergið þrifið, þannig að allir geta verið í fríi í fríinu sínu á Gran Hotel Bali.
Það eru 18 lyftur í hótelinu, þar af tvær utanáliggjandi með ólýsanlegu útsýni.    

Matur og drykkir
Á hótelinu eru tveir veitingastaðir sem bjóða upp á hlaðborð en þar er jafnframt hægt að fylgjast með matreiðslumönnum hússins að störfum. Fjórir aðrir staðir bjóða upp á létta rétti ásamt bar þjónustu.
Hægt er að fá herbergisþjónustu allan sólarhringinn.
Allir okkar gestir njóta þess að fá morgunverð og hádegis eða kvöldverð innifalinn í verði þegar þeir bóka þetta glæsihótel.
 
Allt innifalið: (í boði 30.mars - 31.maí 2012)
Í "allt innifalið" er hægt að fá drykki á Ponoch barnum frá kl. 10:00 til kl. 20:15 og á AT L´Illa barnum frá 20:15 til 23:00.
Boðið er uppá kaffi, te, vatn, gosdrykki og innlenda áfenga drykki. Gestir fá einnig drykki með hádegis- og kvöldverði.  Frá kl 10:00 og til kl. 19:00 er hægt að fá afgreiddar kaldar samlokur og snarl. Athugið að greiða þarf sérstaklega fyrir minibar í herbergi.  Afgreiða á "öllu inniföldu" lýkur kl. 12 á brottfarardegi. Ef gestir snæða eingöngu kvöldmat á komudegi þá er hægt að fá afgreiddan hádegismat á brottfarardegi.

Önnur aðstaða
Hótelið býður upp á nýja og vel útbúna heilsuræktarstöð, þar sem meðal annars má finna hlaupabretti, lóð og tæki, heita potta, gufubað, nuddherbergi, hárgreiðslu og snyrtistofustofu, og heilsumeðferð.  Greitt er sérstaklega fyrir þá þjónustu á staðnum.
Hægt er að kaupa aðgang að þráðlausu interneti í gestamóttöku. Ekki er þráðlaust internet á herbergjunum. Einnig er hægt að leiga handklæði í garðinum.

Afþreying
Gran Hotel Bali er hótel sem mikið leggur upp úr afþreyingu fyrir alla aldurshópa. Í garðinum finnur þú sundlaugar, fyrir þá yngstu jafnt sem þá eldri, sérstakan nuddpott, brýr og fossa svo eitthvað sé nefnt. Stór útiaðstaða er fyrir sundlaugargesti, með veitingaraðstöðu af ýmsum toga. Leiktækjasalur, barnaklúbbur, útisvið fyrir dag og kvöldskemmtanir, net-kaffi og ótal margt fleira sem ekki er pláss til að nefna hér.  
Boðið er upp á afþreyingardagskrá daglega fyrir börn og fullorðna. Skemmtidagskrá er á hverju kvöldi ásamt dansi.  Næturklúbbur er í kjallara hótelsins.

Okkar mat
Einhver mest spennandi valkostur sem íslenskum sumarleyfisgestum hefur boðist frá upphafi, með tilliti til verðs og gæða. Tilvalið fyrir pör eða hjón, hvort sem þau eru ein eða með eitt til tvö börn (ef tvö börn, þá eitt ungabarn).
Hótelið er fyrir þá sem vilja láta dekra við sig og vilja njóta þess saman að vera í fríi. Til þess meðal annars  að gera þetta að veruleika munu allir farþegar okkar sem á hótelinu gista  njóta þess að hafa morgunverð og kvöldverð innifalinn í  verði. Er hægt að biðja um betra og afslappaðra frí , þar sem tiltekt og eldamenska eru verkefni sem aðrir en fjölskyldan sinnir. Við segjum þetta er sannarlega frí þar sem allir eru í fríi.  
   
Sjón er sögu ríkari, svo við skorum á þig að kíkja á heimasíðu Gran Hotel Bali sem er 
www.granhotelbali.com og kannaðu hvort þú sért okkur ekki sammála.

Akstur: Sumarferðir bjóða uppá akstur milli Alicante flugvallar og hótela á Benidorm á öllum flugdögum yfir sumartímann. Ef ekki fæst næg þáttaka áskiljum við okkur rétt á því að fella aksturinn niður. Farþegar verða látnir vita með 7 daga fyrirvara ef um slíkt er að ræða.


Powered by ODIN