Gott að vita

Landið

Spánn er 505.955 ferkílómetrar, 493.484 ferkílómetrar er meginlandið en restin eru eyjar og bæirnir Ceuta og Melilla í Norður-Afríku. Íbúar Spánar eru um 41 milljónir.

Akstur

Vegna mismunandi þarfa viðskiptavina okkar er akstur að og frá flugvelli erlendis valkvædd þjónusta fyrir þá sem það kjósa. Ath: að bóka og greiða þarf aksturinn fyrir brottför frá Íslandi.

Súrefni

Auka súrefni í flugvélinni kostar 13.250 kr ef flogið er með FHE hvora leið. Bóka þarf súrefnið hjá sölumanni á skrifstofu fyrir brottför. Ef flogið er með Futura (FUA) er ekki hægt að fá auka súrefni um borð.

Gjaldmiðill

Evra. Hér má finna gengi Evrunnar.

Veður

Meðalhitastig

apríl maí júní júlí ágúst sept. okt.
20°C 24°C 26°C 29°C 30°C 28°C 24°C

Veðrið í dag

Kreditkort og Debetkort

Visa og Euro ganga í flestum verslunum og á veitingahúsum en mælt er með því að fólk taki út reiðufé í hraðbönkum fremur en að nota kortin daglega. Hraðbankar eru við alla banka. Ekki er hægt að greiða skoðunarferðir með kreditkorti.

Þjórfé

Þjórfé er ekki innifalið í reikningi veitingahúsa. Venjan er að bæta 5%-10% við eftir því hve vel er gert.

Flugtími

Er um 4 klst og 10 mín. til Alicanteflugvallar í beinu leiguflugi með flugfélögunum Futura eða Iceland Express. Athygli skal vakin á því að hámarks þyngd á farangri er 20 kg, golfsett, bretti og fl. er greitt aukalega fyrir. Tímamismunur er +2 tímar miðað við íslenskan tíma á sumrin en +1 tími á vetrartíma. Klukkunni er breytt síðustu helgina í mars og síðustu helgina í október. Frá Alicante flugvelli er um 40 mínútna akstur til Benidorm. ATH. Ekki er æskilegt að fljúga út eftir 32. viku ef konur eru barnshafandi.

Bílaleiga

Fararstjórar veita upplýsingar um bílaleigur og aðstoða við að panta bíl. Lágmarksaldur ökumanns er 23 ár og 2ja ára reynsla af akstri er áskilin. Framvísa verður gildu ökuskírteini og vegabréfi. Í miðborg Alicante, miðbæ Benidorm og Albir er bílastæðagjald greitt. Vegatolla þarf að greiða á hraðbrautum.

Drykkjarvatn

Það er betra að kaupa vatn til neyslu þar sem vatnið á Spáni er ekki eins gott og íslenska vatnið okkar. Það er okkur ekki skaðlegt en kaffið og teið verður betra ef hellt er á með keyptu vatni. Nauðsynlegt er að drekka meira en maður gerir alla jafna heima.

Leigubílar

Leigubílar eru á hverju strái og sýna grænt ljós ef að þeir eru lausir, allir bílar eru með gjaldmæli en ágæt regla er að spyrjast fyrir um verð áður en sest er upp í bílinn sérstaklega ef um langar vegalengdir er að ræða.

Matur

Fjöldann allan af veitingastöðum má finna á Benidorm. Á "Laugaveginum" er mikið úrval veitingastaða, einnig má finna alþjóðlegar skyndibitakeðjur s.s. Pizza Hut, McDonalds, Kentucky Fried Chicken, Burger King og fleiri. Í gamla bænum er að finna mikið af veitingastöðum, bæði alþjóðlegum og spænskum.

Netkaffihús

Netkaffihúsum fjölgar stöðugt á Benidorm. Tveir staðir eru til dæmis rétt fyrir neðan Los Gemelos 20 á Calle Lepanto, súpermarkaður með internetaðgangi er við Los Gemelos XXII.

Rafmagn

Er 220 volt, sama og á Íslandi

Sjóböð

Á flestum baðströndum gilda ákveðnar öryggisreglur. Athugið að misjafnt er hvort einhver er á öryggisvakt á ströndinni.

  • Rauður fáni, bannað að fara í sjóinn, getur varðað sektum.
  • Gulur fáni, aðgát skal höfð við böð.
  • Grænn fáni, ládeyða, gott baðveður.

Sport og afþreying

Sjóskíði, hjólabátar og fleira er til leigu á Levante ströndinni. Fjöldi golfvalla er í nágrenni Benidorm. Keilu- og leiktækjasalur er við "Laugaveginn".

Hægt er að leigja kerrur, hjólastóla, mótorhjól og fleira hjá Amigo.

Sjávardýragarðurinn Mundomar er á Benidorm, einnig er skemmtilegur Safari dýragarður í Elche, stutt frá Benidorm. Festilandia er lítið og skemmtilegt barnatívolí við "Laugaveginn". Stærri skemmtigarðar eru svo Terra Mitica, við Benidorm og Port Aventura sem er staðsettur rétt fyrir utan Barcelona.

Terra Natura er nýr dýragarður við hliðina á Terra Mitica sem allir ættu að heimsækja. Í Terra Natura er að finna 1500 dýr af 200 tegundum, þar af rúmlega 50 sem eru í útrýmingarhættu. Skemmtilegur garður fyrir alla fjölskylduna. Hægt er að taka strætó frá Benidorm að Terra Natura.

Strætisvagnar

Eru bláir og hvítir að lit og aka víða, vagn nr 12 gengur til stórmarkaðarins Carrefour og að verslunarmiðstöðinni La Marina á 30 mínútna fresti.

Tryggingar

Öllum er ráðlagt að huga að ferðatryggingum áður en lagt er af stað í ferðalag og athuga að allir fjölskyldumeðlimir séu vel tryggðir.

Þjófnaður

Varist að hafa peningaveski í rass- eða brjóstvösum. Hengið ekki handtöskur á stólbak eða leggið frá ykkur. Takið ekki með ykkur verðmæti á ströndina og passið eigur ykkar alltaf vel. Mælt er með því að hótelgestir leigi öryggishólf og geymi öll verðmæti og vegabréf í þeim.

Skemmtanalíf

Mesta götu- og næturlífið er við strandgötuna sem er fallega upplýst göngugata og í götum sem liggja upp af henni. Þar er einnig "enska hverfið" með alla sína pöbba og diskótek. Við strandgötuna í áttina að Gamla bænum eru flestir músíkbarirnir og kaffihúsin. Þar eru einnig svokallaðir "beach club", útibú frá stóru klúbbunum sem eru allir við þjóðveginn fyrir ofan Benidorm, s.s. Pacha, KM, Penelope, Amnesia og Moai. Einn glæsilegasti næturklúbbur Spánar er Benidorm Palace. Frábærir skemmtikraftar, fjöllistamenn, söngvarar og dansarar töfra fram óborganleg atriði.

Verslun

Á "Laugaveginum" má finna fjölmargar verslanir t.d. Benetton, Zara, Mango, Lacoste og fleiri. "Laugavegurinn" kvíslast svo við "Plaza Triangular" torgið í minni verslunar- og göngugötur inn í hjarta Gamla bæjarins. Einnig má finna þessar verslanir og fleiri í La Marina verslunarmiðstöðinni. Í Alicante má finna mikið úrval verslana, El Corte Ingles er stórt vöruhús á mörgum hæðum og svo má ekki gleyma Nike Factory Store en þar er alltaf hægt að gera góð kaup. Markaðir eru ætíð að morgni dags, rétt fram yfir hádegi. Þar er selt allt frá skóm og leðurvörum til sætinda og ávaxta

Laugavegurinn

Avenida de Mediterraneo er aðalgatan á Benidorm og í daglegu tali Íslendinga nefnd "Laugavegur". Þar má finna fjölmargar verslanir og veitingastaði.

Gamli bærinn

Þröngar og litlar götur eru einkennandi fyrir gamla bæinn. Þar eru margar skemmtilegar búðir og úrval veitingastaða og Tapasbara.

Skemmtilegar heimasíður

Almennt um Benidorm

Nytsamlegar upplýsingar fyrir ferðamenn

Upplýsingar um veitingastaði og fleira

Vatnagarðurinn Aqualandia

Töfraþorpið Altea

Vefmyndavél sem sýnir okkur stemninguna á ströndinni

Upplýsingar um Costa Blanca svæðið

Meira um Costa Blanca

Costa Blanca



Powered by ODIN