Skoðunarferðir

Skráning í skoðunarferðir fer fram í viðtalstíma og þjónustusíma fararstjóra og er greitt fyrir þær hjá fararstjóra.

Skoðunarferðir eru með íslenskum fararstjóra ef þátttaka er næg.

Athugið að ferðir geta fallið niður, þær breyst eða aðrar komið í staðinn, og að sumar ferðir geta verið háðar lágmarksþátttöku.



Verslunarferð til Alicante - Nike Outlet og Plaza Mar 2

Ekið eftir þjóðveginum í átt að Alicante og stoppað á verksmiðjuútsölu á vegum Nike íþróttavöruframleiðandans. Í þessari verslun er að finna Nike vörur á ótrúlega góðu verði. Eftir eins og hálfs tíma stopp er haldið áfram inn í Alicante þar sem stoppað er í verslunarmiðstöðinni Plaza Mar 2. Þessi verslunarmiðstöð er svipuð verslunarmiðstöðvum á Íslandi að mörgu leyti. Þar er að finna C&A, H&M, Zara, Mango og fleiri slíkar verslanir.

Klukkan þrjú er haldið til baka og komið heim á hótel á bilinu hálf fimm til hálf sex.


Spánn að fornu og nýju

Skoðunarferðir okkar á Costa Blanca svæðinu eru fjölbreytt blanda sem ætlað er að þjóna þörfum fólks fyrir verslunarferðir og dagsferðir í glæsilega skemmtigarða annars vegar, og menningarferðir um skrítin og skemmtileg fjallaþorpin hins vegar.


Mundomar og Aqualandia

Dagsferð í sædýragarðinn Mundomar og í vatnsrennibrautagarðinn Aqualandia en garðarnir eru hlið við hlið í jaðri Benidorm. Farið er frá hótelum að morgni og haldið sem leið liggur að görðunum.

Mundomar

Byrjað er í Mundomar garðinum, sem er fallegur garður með göngustígum og fossum þar sem boðið er upp á dýrasýningar.

Páfagaukar bregða á leik og sýna fimi sína. Aðalstjörnurnar eru samt höfrungarnir sem sýna listir sínar. Sýning sæljónanna er líka alveg frábær og heilla bæði unga og aldna með skemmtilegum uppákomum.

Veitingastaður er á staðnum og að auki er boðið upp á aðstöðu fyrir þá sem koma með nesti. Allir aldursflokkar eiga saman skemmtilegan dag í Mundomar.

Meira á vef Mundomar

Þegar farið er úr garðinum yfir í Aqualandia við hliðina þá býðst gestum að fá stimpil á hendina sem gefur möguleika á að koma aftur í garðinn og sjá sýningar seinna um daginn.

Aqualandia

Í Aqualandia eru búningsklefar og skápar til geymslu á fatnaði og verðmætum. Þar er einnig hægt að leigja stóran kút sem er gagnlegur þegar farið er í öldulaugina eða í straumlaugina sem liggur umhverfis garðinn. Þar er hægt að liggja í kútnum sínum og láta sig fljóta makindalega í nokkra hringi. Gott er að vera með sundgleraugu þegar farið er í rennibrautirnar og einnig er mikilvægt að vera með mjög góða vatnshelda sólarvörn þegar farið er í garðinn því saltvatn er í laugunum og rennibrautunum.

Meira á vef Aqualandia


Terra Mitica

Skemmtileg dagsferð í skemmti- og fjölskyldugarðinn Terra Mitica, einn vinsælasta skemmtigarð Spánar, en hann á engan sinn líka í Evrópu. Þú heimsækir hina fimm fornu menningarheima Miðjarðarhafsins í einni ferð. Terra Mitica er fantasíuheimur fyrir alla aldurshópa.

Í garðinum er bæði fróðleikur og skemmtun og þar eru ótal tækifæri til ýmis konar skemmtunar. Í garðinum er fjöldi leiktækja og glæsilegra veitingastaða en hápunkturinn er í margra augum einn stórkostlegasti rússíbani Spánar.

Farið er í garðinn að morgni með rútu þar sem hópurinn fær afhenta aðgöngumiða. Í kjölfarið tekur við dagur án leiðsagnar í garðinum til klukkan fimm þegar hópurinn hittist aftur fyrir utan innganginn í garðinn.

Í Terra Mitica er að finna ágæta veitingastaði í mismunandi verðflokkum. Bæði eru í garðinum skyndibitastaðir og fínni veitingastaðir. Garðurinn er einn veglegasti skemmtigarður Evrópu með frábær leiktæki og glæsisýningar.

Gott er að hafa í huga að vera í klæðnaði sem má blotna örlítið og eins að vera léttklædd og með nóg af sólarvörn í farteskinu. Hafið verðmæta hluti, t.d. myndavélar og þess háttar í vatnsheldri tösku eða poka.

Nánar um Terra Mitica


Benidorm Palace

Kvöldskemmtun á Benidorm Palace er ómissandi þegar komið er til Benidorm. Þar er ein skrautlegasta og glæsilegasta danssýning á Spáni sem notið er eftir frábæran kvöldverð.

Athugið að ferðir geta fallið niður, þær breyst eða aðrar komið í staðinn.


Fjallaþorpið Guadalest

Í skemmtilegri ferð um fjöllin fyrir ofan Benidorm er ekið meðfram stöndinni og upp til fjalla. Komið er í fjallaþorpið Guadalest, sem hlýtur að teljast eitt sérstæðasta fjallaþorp Spánar og þótt víðar væri leitað. Íbúar þess eru aðeins um 170 talsins en yfir tvær milljónir ferðamanna heimsækja staðinn á hverju ári, sem gerir þetta litla þorp að einum fjölsóttasta ferðamannastað Spánar.

Í þorpinu er gamalt Máravirki frá 8. öld, byggt á kletti í um 900 metra hæð yfir sjávarmáli. Eru kastalarústirnar til vitnis um stormasama sögu þess. Þræða þarf göng í gengum klett til þess að komast að elsta hluta þorpsins, en efst trónir kirkjugarðurinn með á einstakt útsýni yfir Guadalest dalinn og nærliggjandi sveitir.

Í þorpinu eru smámunasöfn, pyntingasafn og skemmtilegar verslanir og veitingastaðir. Þorpsbúar eru frægir fyrir handverk, t.d. handsaumaða dúka, körfugerð og barnaföt.

Líklega hafa þorpið og kastalinn myndast við komu Arabanna. Múslimarnir lögðu undir sig dalinn og samkvæmt frásögnum Arabanna héldu innfæddir eigum sínum á stjórnartímum þeirra.

Litli kastalinn í Guadalest hefur mest aðdráttarafl og frá þessu svæði liggja steinlögð stræti sem eru örmjó og hlykkjast upp í áttina að kastalanum. Það er ævintýri líkast að hverfa aftur í söguna og sjá hvernig tíminn virðist hafa staðið í stað á þessum verndarstað dýrlingsins Heilags Gregory.

Algar fossarnir eru óvenjuleg paradís, þeir falla í stöllum niður bergið og hægt er að baða sig í tjörnum sem myndast hafa víða á leið þeirra niður bergið. Hægt er að kalla þá náttúrulegan vatnsleikjagarð. Göngustígar og tröppur liggja upp með fossunum, allt upp á fjallsbrún þar sem er lón mikið sem hægt er að baða sig í. Mikill gróður er meðfram stígunum alla leið upp, t.d vaxa þar kryddjurtir og fleira sem notað er til framleiðslu á olíum og ilmvötnum.

Við fossana eru söfn, svo sem náttúrusafn þar sem hægt er að skoða jurtir og það sem framleitt er úr þeim.

Stutt frá Guadalest er skemmtilegur dýragaður. Eigandi garðsins hefur í 9 ár veitt dýrum heimili sem hafa búið við illa meðferð af einni eða annari ástæðu. Sum koma úr sirkusum eða tilraunastofum, önnur hafa verið tekin frá eigendum sínum á Spáni og enn önnur koma lengra að. Þar er t.d. hvít tígrisynja sem lenti í jarðsprengju í Afganistan og missti annað augað.

Það er spennandi að fylgjast með dýrunum í Örkinni hans Nóa.


Terra Natura

Glæsilegur nýr dýragarður sem opnaði vorið 2005 við hliðina á Terra Mitica tívolígarðinum.

Í Terra Natura er að finna 1.500 dýr af 200 tegundum, þar af rúmlega 50 sem eru í útrýmingarhættu. Skemmtilegur garður fyrir alla fjölskylduna.

Hægt er að taka strætó frá Benidorm að Terra Natura.


Töfraþorpið Altea

Altea er lítið þorp sem stendur á háum kletti við sjóinn. Efst á klettinum trjónir dómkirkjan og kallar með klukkum sínum með jöfnu millibili. Kirkjan er í márískum stíl með bláu hvolfþaki. Hvítkölkuð húsin standa þétt við steinlögð þröng stræti og útsýnið við aðaltorgið er ævintýri líkast í kvöldsólinni.

Á torginu hafa listamenn komið sér fyrir við listiðn sína og heillandi er að sjá verkin þeirra verða til og freistast margir til að kaupa verk þeirra og hafa með sér til heimalandsins. Mikill fjöldi antik verslana er í Altea, auk fjölda veitingastaða sem gaman er að fá sér að borða á.


Valencia

Valencia er þriðja stærsta borg Spánar. Þar má finna stærsta sædýrasafn Evrópu ásamt Tækni- og vísindasafni. Þar verður skoðaður sögufrægur, gamall borgarhluti.

Meira um Valencia


Ferðir á eigin vegum

Við höfum gert samning við Euro Adventures. Þetta gerir farþegum okkar kleift að bóka spennandi skoðunarferðir á eigin vegum í Portúgal og á Spáni.

Í boði er mikið úrval af styttri og lengri ferðum. Gönguferðir, reiðtúrar, siglingar og margt fleira.

Það er gaman að búa til sína eigin ævintýraferð.

Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Bókaðu skoðunarferð hjá Euro Adventures



Powered by ODIN