Kanarí

Kanaríeyjar hafa verið kallaðar eyjar hins eilífa vors.

Ungir sem aldnir Íslendingar flykkjast til Gran Canaria á hverju ári og njóta alls þess sem eyjan hefur upp á að bjóða.

Á Gran Canaria er mjög fjölbreytt landslag - hæðir og hólar, fjöll og dalir, eyðimerkur og sandöldur sem minna á eyðimerkurlandslag. Kanaríeyjar liggja í heittempraða beltinu og þar blása hlýir vindar nánast allt árið.

Landslag eyjanna er stórbrotið og boðið er upp á spennandi skoðunarferðir t.d. í hella og híbýli Guances, frumbyggja eyjanna, en margir þeirrra búa þar enn.


Enska ströndin

Á Ensku ströndinni (Playa del Inglés) á suðurhluta Gran Canaria finnurðu flest það sem nauðsynlegt er í góðu sólarfríi. Frískandi hafgolan heldur hitastiginu þægilegu yfir daginn. Mikill fjöldi veitingastaða er á Ensku ströndinni og hægt er að gæða sér á réttum frá flestum heimshornum. Þar má einnig finna skemmtistaði við allra hæfi, allt frá nýtískulegum diskótekum til skemmtistaða sem höfða til eldri borgara og allt þar á milli.


Maspalomas

Í Maspalomas má finna hvern unaðsreitinn á fætur öðrum í formi aldingarða með lágreistum þyrpingum smáhýsa og sundlaugum sem bíða komu veðurbitinna Íslendinga á köldum vetrardögum. Hér er minni ys og þys en á Ensku ströndinni en í Faro 2 er mikið úrval veitingastaða, skemmtistaða og bara. Auðvelt er að komast á milli Ensku strandarinnar og Maspalomas í strætó eða leigubíl.


Las Palmas

Las Palmas er höfuðborg Gran Canaria og um leið Austurhéraðs Kanaríeyja, en eyjarnar eru tvö héruð af sautján héruðum Spánar. Í Las Palmas býr um helmingur allra íbúa Austurhéraðs. Í Las Palmas er mjög fjölbreytilegt mannlíf jafnt að nóttu sem degi, sérstaklega í gamla borgarhlutanum. Kaffihús eru þar á hverju strái, sem og einstök flóra veitingastaða og öldurhúsa þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi.


Nánar

www.grancanaria.com



Powered by ODIN