Roque Nublo

roquenublo01.jpg
Hleð hótelmynd
Færa uppFæra nipur

Vel staðsett íbúðagisting við Avenida de Tirajana með einföldum og björtum íbúðum og góðum sundlaugargarði. Í byggingunni er góður veitingastaður, Las Brasas.

ALMENNT

Miðsvæðis á Ensku ströndinni við Avenida de Tirajana, við hlið Yumbo Centrum. Í byggingunni eru margir veitingastaðir og garðurinn þykir sérlega notalegur.

Vistarverur

Snyrtilegar, bjartar og einfaldar íbúðir. Í þeim er stofa, svefnherbergi, eldhúskrókur, baðherbergi og rúmgóðar flísalagðar svalir með garðhúsgögnum. Íbúðirnar rúma hámark 4 gesti (3 fullorðna og 1 barn). Endurnýjað að hluta árið 2003.

Okkar mat

Einfaldar, rúmgóðar íbúðir á góðum stað. Ein vinsælasta gisting Íslendinga á Kanarí, góð staðsetning á eftirsóttum stað.



Powered by ODIN