Hotel IFA Buenaventura

IMG_7137.jpg
Hleð hótelmynd
Færa uppFæra nipur

Mjög þægilegt og gott hótel á góðum stað á Ensku ströndinni, með tvo sundlaugargarða, annan rólegan en í hinum er skemmtidagskrá. Mjög hagstæður og góður kostur fyrir fjölskylduna.


UPPLIFUN

Mjög þægilegt og gott hótel á góðum stað á Ensku ströndinni, með tvo sundlaugargarða, annan rólegan en í hinum er skemmtidagskrá. Mjög hagstæður og góður kostur fyrir fjölskylduna.


VISTARVERUR

Herbergin eru einstaklega rúmgóð, um 40m2 og öll með baði, síma, gervihnattasjónvarpi og öryggishólfi. Á svölum eru húsgögn. Hægt er að panta lítinn ísskáp inná herbergin, verð 3 evrur á dag.

AÐSTAÐA

Á hótelinu eru þrjár sundlaugar og ein barnalaug í tveimur stórum sundlaugagörðum, annar garðurinn er með skemmtidagskrá á daginn en hinn rólegri. Mjög góð aðstaða er í báðum görðunum, ekki síst fyrir börnin.

Stutt er í alla þjónustu, matvörumarkaði, verslanir og veitingahús.


AFÞREYING

Á hótelinu eru þrír tennisvellir (gegn gjaldi), körfuboltavöllur (gegn gjaldi), blakvöllur (gegn gjaldi), fjölnotavöllur, borðtennis, billjarðborð (gegn gjaldi), líkamsrækt (gegn gjaldi) og nettengdar tölvur (gegn gjaldi).

Tveir golfvellir eru í næsta nágrenni við hótelið, minna en 3 km frá hótelinu, Maspalomas Golf og Meloneras Golf.


VEITINGASTAÐIR

Á hótelinu eru tveir veitingastaðir, annar hlaðborðsstaður og hinn hefðbundinn. Auk þess eru fimm barir og tveir sundlaugarbarir.


FYRIR BÖRNIN

Góð aðstaða fyrir börn, barnalaug, skemmtigarður (gegn gjaldi) og leikvöllur.


SJ 07.08



Bygging

  • Stjörnur (3)
  • Gestamóttaka (Já)
  • Fjöldi hæða (8)
  • Lyftur (true)
  • Fjöldi herbergja (724)

Aðstaða

  • Veitingastaður (Já)
  • Billjarð (Já)
  • Barnalaug (Já)
  • Sólbekkir (Já)
  • Skemmtidagskrá (Já)
  • Leiksvæði fyrir börn (Já)
  • Garður (Já, 2 garðar)
  • Internet aðgangur (Já)
  • Sundlaug (Já)
  • Tennisvöllur (Já)
  • Nuddpottur (Já)
  • Bar (true)

Vistarverur

  • Öryggishólf (Já, gegn gjaldi)
  • Kaffivél (Nei)
  • Ísskápur (Nei)
  • Sími í herbergi (Já)
  • Hárþurrka (Já)
  • Gervihnattasjónvarp (Já)
  • Svalir/Verönd (Já)

Þrif Oft í viku

  • Þrif (7 x í viku)
  • Handklæðaskipti (7 x í viku)
  • Skipt á rúmum (2 x í viku)


Powered by ODIN