Gott að vita
Landið
Gran Canaria er 1.532 km2 og íbúarnir eru um 700 þúsund.
Akstur
Vegna mismunandi þarfa viðskiptavina okkar er akstur að og frá flugvelli erlendis valkvæð þjónusta fyrir þá sem það kjósa. Athugið að bóka og greiða þarf aksturinn fyrir brottför frá Íslandi.
Veður
Meðalhiti á Kanarí
| nóvember
|
desember |
janúar |
febrúar |
mars |
apríl |
| 24°C |
19°C |
20°C |
20°C |
21°C |
21°C |
Veðrið í dag.
Gjaldmiðill
Gjaldmiðillinn er Evra (EUR). Reiknaðu út gengið á Oanda.
Debet- og kreditkort
Visa og MasterCard ganga í flestum verslunum og á veitingahúsum en mælt er með því að fólk taki út reiðufé í hraðbönkum fremur en að nota kortin daglega. Nauðsynlegt er að hafa PIN-númer meðferðis. Bankar eru opnir mánudaga - föstudaga 09:00 - 14:00 og laugardaga 09:00 - 13:00. Athugið að ekki er hægt að fara inn í banka og taka út af greiðslukortum.
Þjórfé
Þjórfé er ekki innifalið í reikningi veitingahúsa. Venjan er að bæta 5-10% við eftir því hve vel er gert.
Flugtími
5 klst og 30 mínútur til Las Palmas. Frá Las Palmas til Ensku strandarinnar er um 30 mínútna akstur. Beint leiguflug.
Ekki er æskilegt að fljúga út eftir 32. viku ef konur eru barnshafandi.
Bílaleiga
Fararstjórar veita upplýsingar um bílaleigur og aðstoða við að panta bíl. Lágmarksaldur ökumanns er 23 ár. Framvísa verður gildu ökuskírteini og vegabréfi. Í miðborg Las Palmas og í bæjum er bílastæðagjald greitt.
Bátsferðir
Hægt er að fara í styttri bátsferðir, til dæmis milli Puerto Rico og Mógan.
Drykkjarvatn
Það er betra að kaupa vatn til neyslu, þar sem vatnið á Kanarí er ekki eins gott og íslenska vatnið okkar. Það er okkur ekki skaðlegt en kaffið og teið verður betra ef hellt er á með keyptu vatni (aqua mineral). Nauðsynlegt er að drekka meira en við gerum alla jafna heima.
Leigubílar
Leigubíla er yfirleitt auðvelt að fá. Þeir aka annað hvort með gjaldmæli í gangi eða hafa fasta gjaldskrá milli vissra staða. Ágæt regla er að spyrja um verð áður en sest er upp í bílinn ef fara á langt. Laus leigubíll þekkist á því að grænt ljós logar á þakinu.
Læknisþjónusta
Leitið aðstoðar fararstjóra eða gestamóttöku ef upp koma sjúkdómar eða slys. Bent er á læknamiðstöðina Clinica Iguazu sem er við Avenida de Tirajana (beint á móti Las Camelias), þar starfar íslenskur hjúkrunarfræðingur.
Matur
Úrval veitingastaða frá öllum heimshornum er á Ensku ströndinni.
Netkaffihús
Hægt er að komast á internetið víða á Kanaríeyjum til dæmis í Cita. Það er hægt að komast inná þráðlaust net á Klörubar, Foto Harry og veitingarstaðnum OK.
Rafmagn
Er 220 volt, sama og á Íslandi
Sjóböð
Á flestum baðströndum gilda ákveðnar öryggisreglur. Athugið að misjafnt er hvort einhver er á öryggisvakt á ströndinni.
- Rauður fáni, bannað að fara í sjóinn, getur varðað sektum.
- Gulur fáni, aðgát skal höfð við böð.
- Grænn fáni, ládeyða, gott baðveður.
Sport og afþreying
Hjólabáta og sæketti er hægt að finna á ensku ströndinni. Sjóskíði og seglbretti er hægt að leigja í Puerto Rico. Billjardborð og tennisvellir finnast víða. Minigolfgarðar eru á nokkrum stöðum. Tvær Go-Kart brautir eru á Gran Canaria, önnur í San Augustin og hin á Maspalomas.
Fuglagarðurinn Palmitos Park er mjög stór og fallegur garður og í honum eru til sýnis hundruðir tegunda fugla. Þar er einnig fiðrildahús, orkídeuhús og mjög stórt fiskabúr og margt fleira. Garðurinn er rétt hjá Maspalomas og hægt er að taka strætisvagn þangað.
Stutt frá Maspalomas er Aqualand, skemmtilegur vatnagarður fyrir alla fjölskylduna.
Cocodrilo Park er dýragarður í um það bil hálftíma aksturs fjarlægð frá Ensku ströndinni. Þar eru ótal tegundir krókódíla ásamt fjölda annara dýra sem er gaman að skoða. Þangað gengur rúta sérstaklega merkt garðinum.
Skemmtigarðurinn Holiday World hefur upp á mikið að bjóða. Rússíbani, paríarhjól og fleira skemmtilegt er í boði.
Í Sioux City ertu komin aftur í villta vestrið, skemmtilegar sýningar og lítill dýragarður fyrir börnin. Garðurinn er staðsettur í San Agustín.
Strætisvagnar
Þeir eru grænir að lit og ganga í allar áttir. Mjög auðvelt er að fara með vagni inn til Las Palmas. Stoppistöðvar vagnanna eru nálægt öllum gististöðum og hægt er að taka þá á milli hinna ýmsu staða.
Tímamismunur
Á veturna er sami tími á Kanarí og Íslandi.
Tryggingar
Öllum er ráðlagt að huga að ferðatryggingum áður en lagt er af stað í ferðalag og athuga að allir fjölskyldumeðlimir séu vel tryggðir.
Þjófnaður
Varist að hafa peningaveski í rass- eða brjóstvösum. Hengið ekki handtöskur á stólbak eða leggið frá ykkur. Takið ekki með ykkur verðmæti á ströndina og passið eigur ykkar alltaf vel. Mælt er með því að hótelgestir leigi öryggishólf og geymi öll verðmæti og vegabréf í þeim.
Skemmtanalíf
Mörg góð diskótek og dansstaðir eru á Ensku ströndinni. Í Kasbah hverfinu er mesta næturlífið og diskótekin opin til morguns. Einnig er fjöldi öldurhúsa þar sem hægt er að fá sér snúning.
Verslun
Úrval verslana er í Las Palmas og þar má nefna El Corte Ingles, Zara, Mango, Cortefiel og ótal skóverslanir og fleira. Flestar verslanirnar eru við Avenida Mesa y Lopes og í verslunarmiðstöðinni Las Arenas. Í Vecindario er nýleg verslunarmiðstöð, Centro Comercial Atlantico, þar sem mikið er af sömu verslunum og í Las Palmas.
Markaður er í Maspalomas miðvikudaga og laugardaga frá 09:00 - 13:00.
Skemmtilegar heimasíður
Upplýsingar um Kanarí
Góð síða, með upplýsingum um skemmtigarða, afþreyingu og fleira
Upplýsingar um Las Palmas
Veitingastaðurinn Bali á ensku ströndinni
Verslunarmiðstöðin CITA
Cactualdea Park