Portúgal
Sólarstaður fjölskyldunnar
Þúsundir Íslendinga þekkja vel til Portúgals og kunna að njóta lífsins þar.
Þeir hverfa á vit gamalla tíma, rölta um gamla bæinn í Albufeira eða leika sér á drifhvítum og einstaklega fallegum baðströndum. Í boði eru allskonar vatnaíþróttir og strandskemmtanir; seglbretti, sjóskíði eða köfun í kristaltærum sjó.
Portúgalar sjálfir eru hlýir, gestrisnir og skemmtilegir og taka Íslendingum vel. Þjóðin er merk menningarþjóð, komin af víðförlum sægörpum.
Praia da Rocha
Þessi skemmtilegi bær stendur við eina af fallegustu ströndum Algarve-héraðsins á suðurströnd Portúgals. Praia da Rocha er einn vinsælasti ferðamannastaður á svæðinu. Þar eru margir góðir veitingastaðir á hverju horni og stutt í alla þjónustu.
Mikið og fjölbreytt mannlíf er einkennandi fyrir bæinn. Stutt er til miðbæjar Portimao, annar stærsti bær Algarve héraðsins. Þar er gaman er að rölta um og kíkja inn í hinar fjölmörgu verslanir sem þar er að finna, eða setjast inn á kaffihús og njóta mannlífsins.
Praia da Rocha yljar ferðamönnum um hjartarætur og uppfyllir þær væntingar sem til hans eru gerðar.
Albufeira
Albufeira, þessi gamli fiskimannabær, er orðinn einn af þekktari ferðamannastöðum í Algarve héraði og ekki að ástæðulausu. Þar sem áður fyrr var lítill og snotur bær þar sem sjómenn réru til fiskjar og dyttuðu að netum sínum, hefur vaxið upp nútímalegur og líflegur ferðamannabær.
Í bænum eru tveir kjarnar, annars vegar gamli bærinn við fiskimannaströndina og hins vegar Laugavegurinn, sem enskumælandi kalla The Strip.
Gamli bærinn státar af kirkjum bæjarins og öllum elstu byggingunum. Bæjartorgið iðar af mannlífi með úrvali af veitingastöðum, kaffihúsum og börum. Í hinum þröngu götum út frá torginu má finna margar skemmtilegar sérverslanir sem taka vel á móti ferðamönnum. Á sumrin koma stundum hljómsveitir og látbragðsleikarar, sem troða upp gestum og gangandi til skemmtunar.
Laugavegurinn er í hinum enda bæjarins, þó er ekki svo langt á milli. Í hinum enda bæjarins er Laugavegurinn - The Strip. Þar standa í röðum veitingastaðir, ísbúðir, kaffihús, og verslanir af öllu hugsanlegu tagi. Neðst við Laugaveginn, næsta Oura ströndinni eru diskóbarirnir með miklu fjöri, stundum langt fram á nótt.
Næturlífið á Laugaveginum er rífandi skemmtilegt og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Lestu meira um Portúgal