UPPLIFUN
Hotel Tivoli Marina er gott 4 stjörnu hótel staðsett við bátahöfnina í Portimao. Hótelið er staðsett mjög sutt frá strönd og stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingahús og bari. Á hótelinu eru 4 veitingastaðir, Nikki Marina þar sem er snæddur morgun- og kvöldverður (innifalinn er í verði), The Pearl -sjávarrétta og sushi veitingastaður, Snack Bar Ithaka, við sundlaugina, býður uppá léttar máltíðir og drykki allan daginn og Deck Bar sem er skemmtilegur bar sem býður uppá léttar veitinga og drykki á kvöldin.
VISTAVERUR
Alls eru 196 herbergi á hótelinu, öll vel búin helstu þægindum eins og góðu baðherbergi, síma, sjónvarpi, öryggishólfi, aðgangi að internetinu, loftkælingu og svölum eða verönd. Herbergin eru 40 fermetrar og rúma 2 fullorðna og 1 barn. Hægt er taka 2 samliggjandi herbergi. Á herbergjunum er lítill ísskápur, diskar og glös til afnota.
Á hótelinu er gott aðgengi fyrir börn. Hægt er að fá barnapössun og hótelið er með góða leikaðstöðu fyrir börn ásamt barnalaug og leikvelli. Á veitingastaðnum er sérstakur matseðill fyrir börn. Góð aðstaða við sundlaugina og stutt á ströndina.