Hotel Pestana Delfim er mjög gott og nýlegt 4 stjörnu hótel staðsett í 3ja minútna göngufjarlægð frá ströndinni Três Irmãos og í 1, 5 km fjarlægð frá Alvor, Hótelið er staðsett í rólegu og friðsælu umhverfi. Alvor er sjarmerandi fiskimannabær með fallegum þröngum göngugötum, litlum verslunum og einu bestu sjávarréttaveitingahúsum Portúgals. Í ca 5 km fjarlægð er Portimao/Praia da Rocha svæðin. Á hótelinu er góður sundlaugargarður með góðri sundlaug og barnalaug. Leikaðstaða fyrir börn í garðinum. Þar er einnig lítil upphituð innilaug ásamt sauna, tyrknesku baði, heilsu- og líkamsræktaraðstöðu.
Á hótelinu eru tveir veitingastaðir, annar fyrir morgun- og kvöldverðahlaðborð og hinn með a la Carte matseðil. Einnig er hægt að kaupa hádegismat og snarl við sundlaugina. Hótelið býður uppá ókeypis ferðir til Portimaó sem er í ca 5 km fjarlægð.
Í nágrenni hótelsins eru amk 5 golfvellir.
Herbergin eru vel búin helstu þægindum, öll með baði, síma, sjónvarpi, öryggishólfi, hárþurrku og loftkælingu. Herbergin rúma 2 fullorðna og 1 barn. Hægt er að velja um herbergi með morgunverði eða hálfu fæði.
- Address: Praia dos Tres Irmos
8501-904 Alvor
Portugal
- Heimasíða: