ALMENNT
Vel staðsett og gott íbúðahótel. Búið er að endurnýja húsgögn og færa íbúðirnar í nútímalegan stíl. Í gestamóttöku er notaleg setustofa með bókasafni. 2 lyftur eru í húsinu. Internet aðgangur í gestamóttöku, gegn gjaldi. Á neðri jarðhæð er veitingastaður og bar. Í garðinum er sundlaug, barnalaug og sólbekkir.
VISTARVERUR
Snyrtilegar íbúðir með 1 svefnherbergi eða stúdíó, stofu, baðherbergi og eldhúskrók. Allar íbúðirnar eru með svölum með garðhúsgögnum. Allar íbúðirnar eru með loftkælingu. Íbúðir rúma hámark 4 gesti. Íbúðirnar eru ágætlega búnar. Á gólfunum eru hvítar flísar og veggir hvítmálaðir. Í stofu í íbúðunum er útdreginn svefnsófi (örlítill hæðarmunur er á dýnum).
Eldhús er ágætlega útbúið, með 2 rafmagnshellum, örbylgjuofni o. fl. Svefnherbergi mjög rúmgott með góðum fataskáp. Barnarúm fást án endurgjalds. Hægt að fá lánaðan barnastól í gestamóttöku. Straujárn og strauborð er í íbúðunum. Aðgangur að Interneti er í gestamóttöku gegn gjaldi. Vinsamlegast athugið að reykingar bannaðar á hótelinu.
OKKAR MAT
Mjög gott, snyrtilegt og þægilega staðsett íbúðahótel með smekklegum vistarverum.
- Address: Cerro Alagoa, Lote 1
Albufeira
Portugal
- Heimasíða: