UPPLIFUN
Einfalt og snyrtilegt 3 stjörnu íbúðarhótel með góðum garði og mjög vel staðsett um 200 metra frá "Laugaveginum". Hótelið var allt endurnýjað árið 2006 og því er allt hótelið, bæði sameign og íbúðir mjög huggulegar.
VISTARVERUR
Stúdío, sem taka þrjá og íbúðir með svefnherbergi og stofu sem taka allt að 4 fullorðna. Íbúðirnar eru einfaldar og snyrtilegar málaðar í ljósum litum, og með ljósum húsgögnum. Vistarverur eru með loftkælingu, ísskáp, sjónvarpi, síma og öryggishólf gegn gjaldi. Allar íbúðirnar eru með svölum og snúa ýmist að götu eða yfir sundlaugargarðinn. Hægt er að fá lánað barnarúm.
AÐSTAÐA
Rúmgóð gestamóttaka sem opin er allan sólarhringinn. Stór setustofa á jarðhæð, bar og veitingastaður. Góður sundlaugargarður með barnalaug, snakkbar, leikherbergi og tveir tennisvellir. Skemmtidagskrá er fimm sinnum í viku. Hægt er að komast á internet í gestamóttöku.
STAÐSETNING
Hótelið er staðsett 200 metra út frá Laugaveginum, rétt fyrir neðan krossgöturnar. sem skilja að efri og neðri hluta Laugavegarins. 10 - 15. mín gangur er niður á Oura Praia ströndina. Verslanir, veitingastaði, barir o fl. er steinsnar frá hótelinu.
- Address: Areias de S. João
8200 -321 Albufeira
- Heimasíða: