Gott að vita

Landið

Portúgal er 92.000 km2 að flatarmáli þegar Madeira og Azoreyjar eru taldar með, aðeins minna en Ísland og íbúarnir eru um 11 milljónir. Í höfuðborginni Lissabon búa rúmlega 2 milljónir.

Akstur til og frá flugvelli erlendis

Vegna mismunandi þarfa viðskiptavina okkar er akstur að og frá flugvelli erlendis valkvædd þjónusta fyrir þá sem það kjósa. Ath: að bóka og greiða þarf aksturinn fyrir brottför frá Íslandi.

Gjaldmiðill

Gjaldmiðillinn er Evra (EUR). Reiknaðu út gengið á Oanda.

Veður

Meðalhitastig

apríl maí júní júlí ágúst sept. okt
22°C 25°C 27°C 30°C 32°C 28°C 25°C

Veðrið í dag

Sport og afþreying

Við Oura ströndina er að finna fjölbreytta möguleika til sjávarleikja. Sem dæmi má nefna sjóskíði, hjólabáta, vatnaketti, hringa, banana og fleira. Hægt er að fara í köfun á Aveiros ströndinni. Á fiskimannaströndinni má einnig finna fjölbreytta möguleika til sjávarleikja.

Á bak við Pingo Doce er svæði sem heitir Bellavista og þar er hægt að fara í tennis og minigolf, þar er einnig að finna leiksvæði fyrir börn. Hestaleigan "Horse Stables" er í Vale Navio stutt fyrir utan Albufeira og þar geta vanir sem óvanir farið í lengri og skemmri ferðir á hestbaki. Karting Almancil go-kart brautin er við bæinn Almancil í um það bil 20 mínútna akstursfjarlægð frá Albufeira.

Víða í Albufeira eru barir sem sýna bæði knattspyrnu og Formúlu 1 í beinni útsendingu á breiðtjaldi sem og minni skjám.

Algarve er paradís golfáhugamanna og þar eru fjölmargir golfvellir. Fararstjórar veita upplýsingar um velli og samningsverð. Í nálægð Albufeira eru líka nokkrar ágætar golfverslanir.

Montechoro Park er lítill skemmtigarður staðsettur fyrir ofan laugaveginn.

Gaman er að heimsækja Krazy World, sem er skemmtilegur garður fyrir börn og fullorðna. Þar má finna "Krazy" minigolf, Jungle Golf, Örkina hans Nóa, sem hefur strandað í Crazy World og krókódílagarð.

Það má líka benda á Slide & Splash, sem er skemmtilegur vatnsrennibrautagarður rétt fyrir utan Albufeira.

Í Sevilla, stutt frá landamærum Portúgals og Spánar er Isla Magica sem er stór skemmtigarður fyrir alla fjölskylduna og Zoo de Sevilla sem er stórkostlegur dýragarður.

Golf

Algarve er paradís kylfinga. Vallargjöld fyrir 18 holur eru frá 4.000 kr. en verð er mismunandi eftir gæðum golfvalla. Við erum með samningsverð við nokkra golfvelli, eins og Vilamoura vellina og Salgados. Nánari upplýsingar um pöntun rástíma og verð hjá fararstjórum.

Skemmtanalíf

Í Algarve er fjöldi diskóteka, kráa og bara. Spilavíti er í Vilamoura (15 km frá Albufeira). Kiss og Kadoc eru stór diskótek sem rúma þúsundir manna. Í gamla fiskimannabænum berst tónlist og lokkandi matarilmur frá veitingahúsum og diskótekum. Mörgum finnst gaman að byrja kvöldið á einhverjum veitingastaðanna, eftir máltíðina, nokkur rauðvínsglös og bjór er gaman að rölta um þröngar göturnar og upplifa rómantíkina, sýna sig og sjá aðra.

Einn af vinsælli börunum meðal Norðurlandaþjóðanna er eflaust Classic Bar sem lengst af hefur verið í eigu Íslendinga. Barinn er í minna lagi en tónlistin er gjarnan spiluð það hátt að hún heyrist vel út á götu þar sem einnig er hægt að sitja.

Verslun

Algarve Shopping er verslunarmiðstöð sem er staðsett í Guia, þar má finna skemmtilegar tískuverslanir, skóbúðir, raftækjaverslanir, súpermarkaðinn Continente (sama búð og í Modelo) og fleira. Retail Park opnaði við hlið Algarve Shopping sumarið 2003. Þetta er minni kjarni þar sem m.a. má finna Nike Outlet, raftækjaverslun, húsgögn, gjafavörur o.fl. Kjöt og grænmetismarkaður ásamt fiskmarkaði er opinn alla daga til hádegis. Markaðurinn er rétt fyrir neðan lögreglustöðina. Sígaunamarkaður er í Albufeira fyrsta og þriðja þriðjudag hvers mánaðar. Í Loulé er bænda- og sígaunamarkaður á hverjum laugardegi. Flóamarkaður er haldinn mánaðarlega í Albufeira.

Gamli bærinn

Í gamla bænum er að finna fjölda góðra veitingastaða, kaffihúsa og bara. Þar eru margar skemmtilegar minjagripaverslanir og hjá götusölum má finna áhugaverða hluti. Þegar kvölda tekur iðar gamli bærinn af lífi og götulistamenn gefa mannlífinu skemmtilegan lit.

Laugavegurinn

"Laugavegurinn" heitir réttu nafni Avenida Sá Carneiro og nær frá Montechoro hótelinu langleiðina niður á Oura strönd. Bretarnir kalla hana "The Strip" en það nafn þekkja allir leigubílstjórar. Á neðri hluta "Laugavegarins" eru margir góðir barir, dansstaðir, veitingastaðir og verslanir. Diskótekið Kiss er opið langt fram eftir nóttu, fyrir þá sem vilja kanna næturlífið betur.

Greiðslukortkort

Visa og MasterCard ganga í flestum verslunum og á veitingahúsum en mælt er með því að fólk taki út reiðufé í hraðbönkum fremur en nota kortin daglega. Debetkort er sjaldan hægt að nota í verslunum og á veitingastöðum. Hraðbankar eru víða í Albufeira, til dæmis í Modelo, í Pingo Doce, við helstu götur í gamla bænum og á "Laugaveginum" og alls staðar er hægt að taka út peninga með debetkorti. Athugið að ekki er hægt að fara inní banka og taka út reiðufé með greiðslukorti og vegabréfi. Ekki er hægt að greiða skoðunarferðir með kreditkorti.

Þjórfé

Þjórfé er yfirleitt ekki innifalið í reikningi veitingahúsa. Venjan er að bæta 5%-10% við eftir því hve vel er gert. Ekki er skylda að gefa þjórfé, heldur er um siðvenju að ræða.

Flugtími

Flogið er í beinu leiguflugi til Faro. Flugið tekur um 4 klst. og 10 mín.

Fjarlægðir

Frá flugvelli til hótela í Albufeira er um 40 mín. akstur.

Tímamismunur

+ 1 tími við íslenskan tíma að sumri.

Bílaleiga

Mögulegt er að leigja bílaleigubíla í Portúgal og þá er auðveldast að hafa samband beint við fararstjórana þegar komið er á staðinn. Lágmarksaldur ökumanns er 23 ár. Framvísa verður gildu ökuskírteini og vegabréfi. Athugið að á hraðbrautum þarf að greiða vegatolla og einnig eru brúartollar við sumar brýr.

Drykkjarvatn

Mælt er með því að kaupa allt drykkjarvatn þó óhætt sé að laga t.d. kaffi úr kranavatni og bursta tennur upp úr því. Nauðsynlegt er að drekka meira en maður gerir alla jafna heima á Íslandi.

Leigubílar

Ekki er hægt að stöðva leigubíla með því að veifa þeim á götu. Leigubílastöðvar eru í gamla bænum, við Modelo og á "Laugaveginum". Leigubílar keyra ekki eftir gjaldmæli, heldur er um fast verð að ræða.

Læknar

Hægt er að ná í enskumælandi lækni allan sólarhringinn. Læknastöðin heitir International Health Center og er við Avenida Infante De Henrique í Oura hverfinu.

Matur og vín

Portúgalskur matur er fjölbreyttur og góður. Piri-Piri kjúklingur er orðinn nokkurs konar þjóðarréttur í Algarve héraði, þó hann eigi uppruna sinn í afrísku nýlendunum. Fiskréttirnir i Algarve eru einkar góðir, enda í flestum tilfellum um ferskt sjávarfang að ræða. Einnig eru Portúgalir lagnir að elda hina gómsætustu rétti úr saltfiski. Ekki má gleyma að minnast á rækjur, skelfisk, krabba og humar og víða á veitingastöðum er fiskabúr þar sem hægt er að velja humarinn.

Af portúgölskum vínum eru sennilega rósavínin og púrtvínin þekktust. En á síðari árum hafa portúgölsk rauðvín og hvítvín notið aukinnar hylli hjá vínáhugamönnum.

Netkaffihús

Svokölluðum netkaffistöðum fjölgar í Albufeira sem og annars staðar. Einn slíkur er í verslunarsamstæðunni gegnt Brisa Sol.

Rafmagn

Er 220 volt, sama og á Íslandi.

Reykingar bannaðar á hótelum

Við vekjum athygli á því að nú hafa verið samþykkt lög í Portúgal sem banna reykingar á hótelum.

Samgöngur

Strætisvagn gengur um bæinn. 3 leiðir eru í boði og er fargjaldið um 1 evra á mann. Strætó gengur frá kl. 7:00 - 24:00 í júní, júlí, ágúst og september. Aðra mánuði til kl. 20:00. Litla Lestin að gengur um bæinn frá kl. 9:00-00:01. Hún fer alltaf sama hringinn, og stoppar á 3 stöðum, í gamla bænum, við Brisa Sol og uppá Laugavegi. Kostar 2 evrur að fara með lestinni. Lestin stoppar á 20 mín. fresti á hverju stoppi.

Sjóböð

Á flestum baðströndum gilda ákveðnar öryggisreglur. Athugið að misjafnt er hvort einhver er á öryggisvakt á ströndinni.

  • Rauður fáni, má alls ekki synda
  • Gulur fáni, hafa varann á
  • Grænn fáni, óhætt að synda

Tryggingar

Öllum er ráðlagt að huga að ferðatryggingum áður en lagt er af stað í ferðalag og athuga að allir fjölskyldumeðlimir séu vel tryggðir. gott er að hafa meðferðis tryggingarskírteini.

Þjófnaður

Varist að hafa peningaveski í rass- eða brjóstvösum. Hengið ekki handtöskur á stólbak eða leggið frá ykkur. Takið ekki með ykkur verðmæti á ströndina og passið eigur ykkar alltaf vel. Mælt er með því að hótelgestir leigi öryggishólf og geymi öll verðmæti og vegabréf í þeim.

Skemmtilegar heimasíður

Albufeira

Upplýsingar um Albufeira

Meira um Albufeira

Skemmtileg síða um Albufeira

Akstur til og frá flugvelli erlendis

Vegna mismunandi þarfa viðskiptavina okkar, um ferðir til og frá flugvelli á gististaði erlendis, er þessi þjónusta nú valfrjáls og fyrir þá sem það kjósa.

Þeir sem vilja nýta sér akstur okkar erlendis með fararstjóra verða því að bóka og fullgreiða þjónustuna hér heima áður en lagt er af stað í ferð.

Bílaleiga

Framvísa skal gildu, íslensku ökuskírteini og vegabréfi. Lágmarksaldur leigutaka er 23 ár. Við erum með samning við bílaleigu og fararstjórar erlendis sjá um pöntun á bílum. Athugið að á hraðbrautum þarf víða að greiða vegatolla og einnig eru brúartollar við einstaka brýr.

Fararstjórar

Í sumar verða íslenskir fararstjórar á okkar vegum í Portúgal og eru þeir til þjónustu reiðubúnir fyrir farþega meðan á dvöl stendur. Undir þeirra leiðsögn gefst farþegum kostur á spennandi skoðunarferðum.

Ferðatilhögun

Flogið er í beinu leiguflugi til Faro. Flugið tekur rúmar 4 klst.

Fjarlægðir

Frá flugvelli í Faro til hótela í Albufeira er um 40 mín. akstur.

Frá flugvelli í Faro til hótela í Lagos er uu 50-60 mín. akstur.

Frá Albufeira til Lissabon eru um 300 km (u.þ.b. 3 klst. akstur).

Gjaldmiðill

Gjaldmiðill er evra (EUR). Reiknaðu út gengið á Oanda.

Greiðslukort

Debet- og kreditkort gilda í flestum stærri verslunum og á veitingahúsum. Margar smærri verslanir taka ekki debetkort. Margir hraðbankar eru í Albufeira og þar er hægt að taka út peninga með debet- og kreditkortum. Nauðsynlegt er að hafa PIN-númer meðferðis. Athugið að ekki er hægt að fara inní banka og taka út reiðufé með greiðslukorti og vegabréfi. Ekki er hægt að greiða skoðunarferðir með greiðslukorti, einungis evrum.

Hitatafla

Meðalhiti: Apríl Maí Júní Júlí Ág. Sept. Okt.
Á daginn 20 22 25 28 28 26 22
Á nóttunni 16 14 18 20 20 19 16
Sjávar 16 17 20 21 21 19 18

Þær eru ekki margar sólarstrendurnar í Suður-Evrópu þar sem sólþyrstir íbúar norðurálfu geta flatmagað innan um geðþekka trillukarla sem dytta að netum sínum og bátum. Þetta er upplifun þeirra sem koma til Albufeira, gamla fiskimannabæjarins sem hefur verið heimavöllur Úrvals-Útsýnar í Algarve undanfarin ár. Ofan við ströndina blasir við töfrandi ævintýramynd þar sem hvítkalkaðar byggingar, sumar með márísku yfirbragði, tylla sér á klettasyllur meðfram tæru Atlantshafi. Í sólarhéraðinu Algarve er einnig ósnortin náttúra og heillandi menning og hvarvetna mætir ferðamönnum portúgölsk hlýja og gestrisni. Gististaðir okkar eru í algerum sérflokki enda telst margt af því sem þykir sjálfsagt í Algarve munaður á öðrum sólarstöðum.

Golf

Algarve er paradís kylfinga. Vallargjöld fyrir 18 holur eru frá 45 Evrur en verð er mismunandi eftir gæðum golfvalla. Golf á Algarve

Handfarangur

Flugmálastjórn hefur gefið út bækling með reglum um handfarangur (pdf) .

Landið

Portúgal er lítið eitt minna en Ísland en íbúafjöldinn er tæpar 11 milljónir. Höfuðborgin er Lissabon en þar búa rúmlega 2 milljónir manna. Í Algarve héraði búa um 300.000 manns.

Rafmagn

220 volt.

Reykingar bannaðar á hótelum

Við vekjum athygli á því að nú hafa verið samþykkt lög í Portúgal sem banna reykingar á hótelum.

Samgöngur

Í Albufeira má komast flest allt fótgangandi og leigubílar eru ódýrir en athugið að á háannatíma (júlí-ágúst) getur verið erfitt að fá leigubíl. Almenningsvagn gengur um bæinn, 3 leiðir eru í boði og kostar 1 evru á mann. Vagninn gengur frá 7:00 - 24:00 í júní, júlí, ág. og sept. Aðra mánuði til kl. 20:00. Litla Lestin gengur um bæinn frá kl. 9:00 - 00:01. Hún fer alltaf sama hringinn og stoppar á 3 stöðum, í gamla bænum, við Brisa Sol og á Laugavegi. Verð er 2 evrur á mann.

Bílaleigubíll hluta dvalartímans er góður kostur. Leigubílar nota gjaldmæli og algengt verð innabæjar í Albufeira er um 350 kr., milli Albufeira og Faro 2.500 kr. Milli Albufeira og Vilamoura 1.800 kr.

Gamli bærinn

Í gamla bænum er að finna fjölda góðra veitingastaða, kaffihúsa og bara. Þar eru margar skemmtilegar minjagripaverslanir og hjá götusölum má finna áhugaverða hluti. Þegar kvölda tekur iðar gamli bærinn af lífi og götulistamenn gefa mannlífinu skemmtilegan lit. Á bæjartorginu eru oft ýmsar uppákomur, einsog dans og söngskemmtanir.

Laugavegurinn

"Laugavegurinn" heitir réttu nafni Avenida Sao Carneiro og nær frá Montechoro hótelinu langleiðina niður að Oura strönd. Bretarnir kalla hana "The Strip" en það nafn þekkja allir leigubílstjórar. Á neðri hluta Laugavegarins eru margir góðir barir, dansstaðir, veitingastaðir og verslanir. Diskótekið Kiss er opið langt fram eftir nóttu, fyrir þá sem vilja kanna næturlífið enn betur.

Strandlíf

Til að halda baðströndum hreinum og ósnortnum eru engin ný hótel reist við ströndina. Baðstrendur með fínkornóttum sandi teygja sig meðfram allri strönd Algarve. Á helstu baðströndum er öryggiseftirlit. Ýmis konar sjósport er hægt að stunda, einna helst við Oura ströndina og Fiskimannaströndina.

Sport og afþreying

Á bak við Pingo Doce er svæði sem heitir Bellavista og þar sem hægt er að fara í tennis og minigolf og einnig er að finna leiksvæði fyrir börn. Hestaleigan "Horse Stables" er í Vale Navio stutt fyrir utan Albufeira og þar geta vanir sem óvanir farið í lengri og skemmri ferðir á hestbaki. Karting Almancil go-kart brautin er við bæinn Almancil í um það bil 20 mínútna akstursfjarlægð frá Albufeira.

Víða í Albufeira eru barir sem sýna bæði knattspyrnu og formúlu í beinni útsendingu á breiðtjaldi sem og minni skjám.

Gaman er að heimsækja Krazy World , sem er skemmtilegur garður fyrir börn og fullorðna. Þar má finna Jungle Golf, Örkina hans Nóa, sem hefur strandað í Krazy World, leiktæki og krókódílagarð.

Það má líka benda á Slide & Splash , sem er skemmtilegur vatnsrennibrautagarður í um 25 mín. aksturfjarlægð frá Albufeira. Í Sevilla, stutt frá landamærum Portúgals og Spánar er Isla Magica er stór skemmtigarður fyrir alla fjölskylduna og Zoo de Sevilla sem er stórkostlegur dýragarður.

Tímamismunur

Bætið 1 klst. við íslenskan tíma (apríl - okt.). Upplýsingar um tímamismun í heiminum.

Veitingastaðir

Portúgalskur matur er ljúffengur og spennandi, sérstaklega sjávarréttirnir. Portúgalir eru ansi lagnir við að búa til hina ýmsu rétti úr saltfisk og bjóða margir veitingastaðir uppá hina ýmsu saltfisk rétti. Piri-piri kjúklingur er orðinn eins konar þjóðarréttur í héraðinu, réttur sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Í Albufeira er úrval matsölustaða í öllum verðflokkum.

Af portúgölskum vínum eru sennilega rósavínin og púrtvínin þekktust. En á síðari árum hafa portúgölsk rauðvín og hvítvín notið aukinnar hylli hjá vínáhugamönnum.

Verslun

Verslanamiðstöðin Modelo er í göngufæri við flest hótelin. Þar er m.a. stór matvöruverslun, banki, fatahreinsun, bakarí, smærri sérverslanir og veitingastaðir. Í Albufeira er hagstætt að kaupa keramik, körfur og handunna muni. Sígaunamarkaður kemur til Albufeira tvisvar í mánuði, 1. og 3. þriðjudag í mánuði. Farandflóamarkaður kemur í bæinn einu sinni í mánuði. Margar minni verslanir taka sér “siestu” eða hvíldartíma, og loka þá yfir miðjan daginn.

Í 10 mín. akstursfjarlægð frá Albufeira er Algarve Shopping, stór verslunarmiðstöð með fjölbreyttu úrval verslana og veitingastaða, keilusal og kvikmyndahúsi. Við hliðina á Algarve Shopping, opnaði sumarið 2003 minni kjarni að nafni Retail Park. Þar má finna m.a. Nike Outlet verslun, húsgögn, gjafavöru, raftækjaverslun o.fl.

Í Faro er einnig stór verslunarmiðstöð, Forum Algarve, auk verslana í miðbænum. Afgreiðslutími verslana í Portúgal er mjög sveigjanlegur.

Tryggingar

Öllum er ráðlagt að huga að ferðatryggingum áður en lagt er af stað í ferðlag og athuga að allir fjölskyldumeðlimir séu vel tryggðir. Gott er að hafa meðferðis tryggingarskírteini.

Þjófnaður

Varist að hafa peningaveski í rass- eða brjóstvösum. Passið alltaf vel handtöskur. Takið ekki með ykkur verðmæti á ströndina og passið eigur ykkar alltaf vel. Mælt er með því að hótelgestir leigi öryggishólf og geymi öll verðmæti og vegabréf í þeim.

Þjónusta

Reyndir fararstjórar okkar taka á móti farþegum á flugvelli og eru þeim innan handar allan dvalartímann. Kynningarfundur er haldinn í rútu á leið frá flugvelli. Upplýsingar um viðtalstíma fararstjóra eru á hóteltöflum/möppum.



Powered by ODIN