Tenerife
Fegurst allra eyja á Kanarí
Tenerife er fögur og heillandi og hefur ýmislegt að bjóða. Staður sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi ungir sem aldnir. Eyjan er ein af Kanaríeyjum, sú stærsta og sker sig úr fyrir einstakt náttúrufar og veðursæld, hreinleika og góðan aðbúnað.
Áfangastaðir okkar á Tenerife eru á Costa de Adeje og Las Americas ströndinni syðst á eyjunni.
Tenerife er stærst af Kanaríeyjunum sjö og liggur um 300 km út af ströndum Afríku. Tindurinn Teide, hæsta fjall Spánar, rís á miðri eyjunni og þess vegna er loftslag mismunandi á norður- og suðurhlutanum. Í suðurhlutanum skín sólin flesta daga ársins og þar halda flestir ferðamennirnir til. Annars er veðurfar jafnt allan ársins hring. Meðalhiti er 20-22 gráður, á svalari dögum fer hitinn vart undir 15 stig og fer sjaldan yfir 30 gráður. Norðanmegin er náttúran fjölbreyttari og gróðursælli, stórir furuskógar, bananaplantekrur og mikið blómahaf. Þar er Loro Park dýragarðurinn, sem hýsir eitt stærsta safn heims af páfagaukum og mörgæsum, og fiskabúr með yfir 3.000 tegundum sjávardýra.
Santa Cruz er höfuðborgin og telur liðlega 200.000 íbúa. Borgin skartar miklum gróðri og iðar af lífi. Kaffihús, veitingastaðir, göngugötur og fjölmargar verslanamiðstöðvar gera heimsókn til borgarinnar notalega og umfram allt skemmtilega.
Sól og sumar allt árið um kring!
Playa de las Americas og Costa Adeje tengjast saman með göngugötu. Meðfram í Las Americas göngugötunni eru veitingastaðir, barir og verslanir.
Fjölbreytt afþreying er í boði allan daginn fyrir fólk á öllum aldri, ekki síst fyrir börnin og unga fólkið. Stærsta go-kart braut í Evrópu er á eyjunni, vatnagarðuinn Aqualand með sundlaugarennibrautir fyrir alla fjölskylduna og stórskemmtilega höfrungasýningu. Við ströndina er sjósportið, sjóskíði, bananabátar siglingar og köfun. Hægt er að gera góð kaup í verslanamiðstöðvunum, þar sem fjöldi verslana er með fínar merkjavörur, og svo er tilvalið að taka nokkra hringi á golfvöllununm, en einir sex golfvellir eru á suðurhluta Tenerife, þar af einn 18 holu á Playa de las Americas. Playa del Duque ströndin er kölluð dekurströndin, enda er hægt að fá nudd á ströndinni.
Á kvöldin tekur við iðandi næturlíf. Fjöldinn allur af fyrsta flokks veitingastöðum gefur fólki tækifæri á að borða góðan mat á sanngjörnu verði og þegar líða tekur á kvöldið er hægt að skoða hina miklu flóru af börum og næturklúbbum sem eru opnir fram undir morgun og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem er dúndrandi stuð á klúbbunum eða rólegri stemning á börum; auk þess má kíkja í spilavítið Casino.
Lestu meira um Tenerife
Nánar
www.abouttenerife.com
Santa Cruz
Playa de las Américas