Upplifun
Gott 4 stjörnu hótel (hét áður Tenerife Princess), frábærlega vel staðsett í hjarta Playa de las Americas þar sem örstutt er í verslanir og þjónustu . Nýtískuleg bygging sem stendur í fallegum gróðursælum sundlaugagarði. Gott hótel fyrir alla fjölskylduna.
Vistarverur
Á hótelinu eru 365 vel búin herbergi með öllum þægindum, þar sem eru tvö stök rúm, skrifborð, öryggishólf, sími, sjónvarp og minibar sem hægt er að fá í gestamóttöku. Á herbergjum er loftkæling, fullbúið baðherbergi með hárþurrku og svalir sem ýmist snúa inn í sundlaugargarðinn, með útsýni yfir Playa de las Americas eða upp til fjalla.
Aðstaða
Góð sólbaðsaðstaða er við hótelið í gróðurmiklum garðinum, bogalöguð sundlaug með hengibrú, fossi og barnalaug og gott leiksvæði fyrir börnin. Ókeypis sólbekkir eru fyrir gesti.
Afþreying
Á Best Tenerife er að finna bæði tennis- og skvassvöll. Internetaðstaða er á hótelinu og auk þess er öflug skemmtidagskrá í boði bæði á daginn og kvöldin svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Veitingastaðir
Aðalveitingastaður hótelsins er hlaðborðsstaður við sundlaugargarðinn, þar sem er borinn er fram morgun- og kvöldverður er þykir ljúffengur. Skemmtilegt grill, veitingahús og bar er að finna í og við sundlaugina þar sem hægt er að svala löngun í mat og drykk yfir daginn.
Fyrir börnin
Krakkaklúbbur fyrir yngstu kynslóðina og fjölbreytt skemmtidagskrá er í boði á daginn og kvöldin fyrir börn sem fullorðna.
Staðsetning
Best Tenerife er mjög vel staðsett í hjarta Playa de las Americas. Aðeins 300 m á ströndina (stígur frá hótelinu) fjöldi verslana, kaffihúsa, veitinga- og skemmtistaða er í næsta nágrenni. Fyrir þá sem vilja komast í golf er Golf las Americas golfvöllurinn aðeins 1 km fjarlægð.
Bygging
- Fjöldi herbergja (365)
- Fjöldi hæða (7)
- Endurnýjað árið (2003)
- Gestamóttaka (Já)
- Lyftur (true)
Aðstaða
- Barnalaug (Já)
- Hraðbanki á hóteli (Já)
- Aðgengi fyrir fatlaða (Já)
- Internet aðgangur (Í gestamóttöku)
- Barnalaug (Já)
- Leiksvæði fyrir börn (Já)
- Líkamsrækt (Nei)
- Matvöruverslun (Í nágrenni)
- Sauna (Já)
- Skemmtidagskrá (Já)
- Tennisvöllur (Já)
- Veitingastaður (Já)
- Bar (true)
Annað
- Fjarlægð frá strönd (300 m)
Vistarverur
- Gervihnattasjónvarp (Já)
- Loftkæling (Já)
- Minibar (Já)
- Sjónvarp í herbergi (Já)
- Öryggishólf (Já á herbergi)
- Sími í herbergi (Já)
Þrif Oft í viku
- Þrif (7 x í viku)
- Skipt á rúmum (4 x í viku)
- Handklæðaskipti (7 x í viku)