Einföld íbúðagisting vel staðsett aðeins um 400 m frá ströndinni. Hótelið er 2 hæðir með góðum sundlaugargaði með barnalaug, einnig hægt að nýta sér sundlaugargarðinn á hótelinu við hliðiná. Stutt frá verslunum og veitingastöðum. Á hótelinu er veitingastaður, snarlbar og sundlaugarbar. Einnig er billjarðborð, borðtennis og skvass. Þvottaaðstaða er á hótelinu gegn gjaldi. Gestamóttaka opin allan sólarhringinn.
Vistarverur
Snyrtilegar íbúðir. Íbúðirnar eru hvítmálaðar með ljósbrúnum leirflísum, hvítum hurðum og húsgögnum. Snyrtilegt baðherbergi og eldhúskrókur með helluborði með 4 hellum og ofni. Í stofunni eru mjög fín áklæði og gluggatjöld úr ljósrósóttu efni.