Gott að vita
Landið
Eyjan er rétt um 300 km frá ströndum Afríku og 1.300 km frá meginlandi Spánar. Hún er um 2.000 km2, skringilega þríhyrnd í laginu og á eynni miðri rís hið tignarlega Pico del Teide 3.718 metra upp úr Atlantshafinu - hæsta fjall Spánar.
Akstur
Vegna mismunandi þarfa viðskiptavina okkar er akstur að og frá flugvelli erlendis valkvædd þjónusta fyrir þá sem það kjósa. Ath: að bóka og greiða þarf aksturinn fyrir brottför frá Íslandi.
Gjaldmiðill
Evra (EUR). Hér má finna gengi Evrunnar.
Veður
Meðalhitastig
| apríl |
maí |
júní |
júlí |
ágúst |
sept |
okt |
| 22°c |
23°c |
24°c |
27°c |
28°c |
27°c |
26°c |
Veðrið í dag
Verslanir
Verslanir eru almennt opnar frá kl. 09:30 - 13:30 / 14:00 og frá 16:30 - 20:30 / 21:00 alla virka daga. Athugið að opnunartími verslana er þó mjög breytilegur eftir verslunum. Stórmarkaðir og verslunarmiðstöðvar eru opnir frá kl. 09:15 - 21:00 alla daga nema sunnudaga.
Greiðslukort
Hægt er að taka reiðufé út á kort í hraðbönkum sem eru víða. Hótel, stærri verslanir og veitingastaðir taka flest greiðslukort.
Bílaleiga
Framvísa skal gildu, íslensku ökuskírteini. Lágmarksaldur leigutaka er 21 árs.
Samgöngur
Strætisvagnar ganga á milli þorpa á eyjunni og til höfuðborgarinnar Santa Cruz og Puerto de la Cruz á norðurhluta Tenerife. Leigubílar eru á hverju horni.
Ferðatilhögun
Flogið er í beinu leiguflugi til Tenerife. Flugið tekur um það bil fimm og hálfa klukkstund. Frá flugvelli til hótela á Playa de las Americas og Costa Adeje er um 20 - 25 mínútna akstur.
Ekki er æskilegt að fljúga út eftir 32. viku ef konur eru barnshafandi.
Súrefni
Auka súrefni í flugvélinni kostar 6.000 kr. hvora leið ef flogið er með Flugleiðum. Bóka þarf súrefnið hjá sölumanni á skrifstofu fyrir brottför.
Sport og afþreying
Á svæðinu er fjölbreytt afþreying, vatnsleikjagarðar, dýragarður, margir golfvellir þ.a. 2 inná miðju ferðamannasvæðinu á Playa de las Americas og Costa Adeje. Tennis, mini-golf, hjólaleigur, óteljandi veitingastaðir, barir og diskótek sem opin eru fram undir morgun.
Á allri strandlengjunni er hægt að stunda margvíslegar vatnaíþróttir, s.s. sjóskíði, vatnaketti, Jet-ski, banana, eða láta sportbát draga sig í fallhlíf ásamt fjölda leiksvæða fyrir born á hinum morgu litlu ströndum svæðanna. Einnig köfun, bátsferðir, skútu og snekkjuleigur og margt fleira.
Tímamismunur
Á veturna sá sami og á Íslandi. Frá april til október bætið við 1 tíma.
Rafmagn
220-240 volt.
Verslun
Fjöldi merkjavöruverslana er á Costa Adeje og Playa de las Americas. Margar nýlegar verslunarmiðstöðvar undir opnum himni eru í Parque Santiago hverfinu á Playa de las Americas. Í höfuðborginni Santa Cruz, La Laguna og Puerto de la Cruz eru nokkrar glæsilegar verslunarmiðstöðvar ásamt El Corte Inglés og Carrefour. Á Tenerife er hægt að kaupa allt sem hugurinn girnist á góðu verði.
Veitingastaðir
Fjölmargir veitingastaðir í öllum gæðaflokkum eru á Tenerife. Á listanum hér fyrir neðan eru nokkrir þeirra.
La Hacienda (Mexíkóskur) C/Alcalde Walter Paetzman, sn/n Costa Adeje.
Grill La Rana (spænskur) Parque Santiago, Playa del las Americas.
El Molino Blanco (Alþjóðlegur). Avda. de Austria, 5, Costa Adeje.
El Arrozoal (Hrísgrjónaréttastaður) Parque Santiago, Playa de las Americas.
Skemmtilegar heimasíður
Um Tenerife
Golf á Tenerife
Meira um Tenerife
Upplýsingar um Tenerife