Antalya Tyrkland

Fararstjóri
Guðný Margrét Emilsdóttir

Um Antalya

Borgarstæði Antalya er fagurt frá náttúrunnar hendi og hún er af mörgum talin ein fegursta borg Tyrklands.

Antalya og nágrenni er einn eftirsóttasti áfangastaður sólþyrstra Evrópubúa og hefur svo sannarlega slegið í gegn hjá Íslendingum. Þar fer saman skínandi sól, fallegar strendur, mikil náttúrufegurð, góður matur og einstök gestrisni heimamanna.

Antalya-borg liggur við samnefndan flóa á suðurströnd Tyrklands. Miðjarðarhafið glitrar í sólinni en í fjarska glittir í Taurus-fjallgarðinn í bláleitri móðu. Borgin byggðist upp frá gamla borgarvirkinu, Kaleici, og veggur sem umlykur gamla hlutann er kílómetri að lengd. Gaman er að rölta um þröngar og brattar götur gamla bæarins, hvíla sig á einhverju af hinum mörgu kaffihúsum eða sjávarréttaastöðum á klettunum þar sem útsýnið yfir flóann er yndislegt. Í miðborginni er fjöldi veitingastaða og verslana þar sem verðlag er mjög hagstætt.

Í nágrenni Antalya er hægt að skoða helstu staði vestrænnar menningarsögu en við flóann eru rúmlega þrjátíu fornar borgir frá tímum Grikkja og Rómverja. Í fjöllunum er hægt að stunda göngur eða fara í siglingu niður eina af fjölmörgum ám sem renna til sjávar við Antalya.

Út frá Antalya eru margar glæsilegar strendur þar sem aðstaða fyrir ferðamenn er eins og best verður á kosið. Í Belek eru frábærir golfvellir en íslenskir kylfingar hafa lýst Belek sem toppstað, hvort sem eru vellir, gististaðir eða umhverfi. En það eru fleiri en kylfingar sem hrifist hafa af Belek því þar er allt sem ferðamenn vilja og þaðan er stutt í rómverskar rústir, mikla náttúfegurð eða til stórborgarinnar Antalya þar sem eru fjölmargar verslunargötur og verslunarmiðstöð með helstu vörumerkjunum.

Antalya laðar að sér ferðamenn alls staðar frá enda bæði fróðlegar og listrænar söguslóðir innan seilingar í bland við fallegt landslag og fjölskrúðugt mannlíf. Gaman er að rölta um þröngar og brattar götur gamla bæjarins, hvíla sig á einhverju af hinum mörgu kaffihúsum eða fiskiveitingastöðum við gömlu bryggjuna, þar sem nú er skútuhöfn með glæsilegum snekkjum.



Powered by ODIN