Fame Residence Lara

Hleð hótelmynd
    Færa uppFæra nipur

    5 stjörnu glæsigisting á Lara ströndinni austur af Antalya. Einkaströnd hótelið stendur við ströndina og hefur uppá öll helstu þægindi að bjóða. Á hótelinu eru góðar inni og útisundlaugar fyrir börn og fullorðna með vatnsrennibrautum. Allur matur og innlendir drykkir innifaldir.

    Upplifun

    5 stjörnu glæsigisting á Lara ströndinni austur af Antalya. Hótelið hefur uppá öll helstu þægindi að bjóða, m.a. einkaströnd. Allur matur og innlendir drykkir eru innifaldir

    VISTARVERUR

    Nýtískuleg og glæsileg herbergi. Á herbergjunum er sími, sjónvarp, loftkæling, smábar og öryggishólf. Greiða þarf sérstaklega fyrir öryggishólf og allt, sem tekið er af smábarnum.

    AÐSTAÐA

    Á hótelinu eru góðar inni- og útisundlaugar fyrir börn og fullorðna með vatnsrennibrautum, og eru handklæði og bekkir fríir í garðinum.

    Heilsuræktaraðstaða, tækjasalur, gufubað, tyrkneskt bað ásamt fjölbreyttu úrvali af dekurmeðferðum. Skemmtidagskrá á daginn og á kvöldin, næturklúbbur, verslanir, snyrtistofa og heilsulind. Aðgangur að interneti er gegn gjaldi í gestamóttöku

    Köfunarskóli er á hótelinu, athugið að að panta þarf tíma.

    VEITINGASTAÐIR

    Úrval veitingastaða er á hótelinu, svo sem ítalskur, kínverskur og sjávarréttastaður. Sundlaugarbar ásamt öðrum bar og m.fl.

    STAÐSETNING

    Um 16 km eru inní miðbæ Antalya. Hótelbíll gengur í bæinn, en greiða þarf fyrir ferðirnar.

    ALLT INNIFALIÐ

    Á hótelinu er allt innifalið.

    ATHUGIÐ

    Þeir sem vilja halda herbergjum sínum fram yfir hefðbundinn útskráningartíma, sem er á hádegi, þurfa að óska eftir því í afgreiðslu hótelsins og greiða fyrir það. Hótelið áskilur sér rétt til að rukka fyrir máltíðir eftir hefðbundinn útskráningartíma

    Athugið að öryggisgæsla á hótelum okkar í Antalya er mjög ströng og utanaðkomandi komast ekki inn á hótelin. Þannig getur vinafólk ekki heimsótt hvort annað á milli hótela.


    FYRIR BÖRNIN

    Á hótelinu er barnaklúbbur sem er opin frá 10:15 - 12:30 og 14:30 - 17:30, minidiskó sem er á kvöldin frá kl. 20:15 í ca 30 mín. Á hótelinu er boðið upp á barnapössun og kostar klukkutíminn um 20 evrur, en ath. að panta þarf hana með eins dags fyrirvara í gestamóttöku.



    Powered by ODIN