Gott að vita

Landið

Tyrkland er 774.815 km2 og þar búa um 65 milljón manns.

Veður

Meðalhiti

apríl maí júní júlí ágúst sept. okt
21°C 25°C 30°C 33°C 33°C 31°C 25°C

Veðrið í dag

Gjaldmiðill

Gjaldmiðillinn í Tyrklandi er tyrknesk líra (TRY). Reiknaðu gengið á Oanda.

Tyrknesk böð

Grípið tækifærið og farið í tyrkneskt bað og verðið tandurhrein frá toppi til táar. Að fara í tyrkneskt baðhús - eða hamman eins og það nefnist á tyrknesku - er algjör paradís. Tyrknesk böð eru hluti hversdagslífsins í Tyrklandi og hafa verið það síðan á miðöldum. Byrjað er á því að koma sér fyrir í baðherbergi með gufu og slappað af í um 10 mínútur. Síðan leggst maður á upphitaðan marmarabekk þar sem maður er allur skrúbbaður og sápaður. Fyrir lítið viðbótargjald er svo að lokum hægt að fá dásamlegt nudd með ólívuolíu. Þú kemur svo út með silkimjúka húð eins og ungabarn.

Matur og drykkur

Tyrknesk matseld er af mörgum talin ein hin besta í heiminum. Matreiðslan er einföld en maturinn bragðgóður, blanda af áhrifum frá arabískum, grískum og austur evrópskum réttum en áhrifa frá Evrópu gætir einnig. Allir kannast við kebab-réttina sem er hægt að fá nánast á hverju götuhorni. Eftirréttir eru gjarnan mjög sætir og geta borið hin sérkennilegustu nöfn.

Tyrkir sjálfir drekka gjarnan raki með mat, sérstaklega með sjávarfangi. Þekktasti tyrkneski bjórinn er Efes en hann er skírður eftir borginni Efesus.

Tyrkland tilheyrir helstu kaffi- og telöndum Evrópu. Að sitja með vinum og kunningjum á kaffihúsi er gamall tyrkneskur siður.

Tyrkneskt kaffi

Gleymið ekki að bragða tyrkneska kaffið. Það er tiltölulega sterkt kaffi með korgnum í og borið fram í litlum bollum. Samkvæmt því sem Tyrkir segja sjálfir á það að vera "sætt sem ástin, heitt sem í helvíti og svo þykkt að maður á að geta gengið á yfirborði þess“.

Moskur

Flestir Tyrkir eru múslimar og guðshús þeirra heita moskur. Í íslamskri trú ber að biðja fimm sinnum á dag. Áður en gengið er inn í moskur verður að fara úr skónum, hylja berar axlir og hné og konum ber að hylja hárið.

Apótek

Lyfjaverslun eða apótek heitir Eczan á tyrknesku. Oft eru apótekin líka merkt á ensku og þýsku (pharmacy - apotheke). Venjulega eru apótek opin frá mánudegi til laugardags kl. 09:00 - 18:00. Á öðrum tímum er er vaktlisti sem segir til um hvaða apótek eru opin.

Debet- og kreditkort

Tekið er við greiðslukortum á flestum stöðum en yfirleitt ekki á litlum veitingahúsum og verslunum. Hraðabankar eru víða og eru þeir opnir allan sólarhringinn.

Bankar

Bankar eru opnir frá mánudögum til föstudags kl. 08:30 - 12:00 og 14:00 - 17:00. Lokað er á laugardögum, sunnudögum og almennum hátíðisdögum. Hægt er að skipta ferðatékkum í bönkum gegn þóknun, þóknunin er misjöfn milli banka, gjarnan á bilinu 3-8%.

Þjórfé

Þar sem þjónustugjald er sjálfkrafa innifalið fyrir þjónustu á veitingahúsum er ekki skylda að greiða þjórfé. Það er þó venja að gefa 10% þjórfé fyrir vingjarnlega og fljóta þjónustu.

Bílaleiga

Fararstjórar eru í góðri samvinnu við bíla- og mótorhjólaleigu sem bjóða hagkvæmt verð og að auki alþekjandi tryggingu. Framvísa skal gildu, íslensku ökuskírteini. Lágmarksaldur leigutaka er 18 ár.

Drykkjarvatn

Kaupið allt neysluvatn í flöskum eða brúsum. Nauðsynlegt er að drekka meira en maður gerir alla jafna heima.

Leigubílar

Leigubílar eru allir gulir. Það er venjulega ódýrt að fara með leigubíl en sjáið til þess að bílstjórinn hafi mælinn á. Ef enginn akstursmælir er í bílnum er æskilegt að semja um verð í upphafi ferðar.

Rafmagn

Er 220 volt, sama og á Íslandi.

Sjóböð

Á flestum baðströndum gilda ákveðnar öryggisreglur. Athugið að misjafnt er hvort einhver er á öryggisvakt á ströndinni.

  • Rauður fáni, bannað að synda.
  • Grænn fáni, óhætt að synda.

Strætisvagnar

Í borgum ganga svokallaðir smávagnar, öðru nafni dolmusvagnar, þeir aka á öllum aðalvegum til og frá miðbænum. Fyrir lítinn pening er hægt að ferðast með þeim á vit nýrra staða og ævintýra í borginni. Vagnarnir fylgja ekki ákveðinni tímatöflu og það er nóg að standa við vegarbrúnina og veifa þegar vagninn nálgast.

Tryggingar

Öllum er ráðlagt að huga að ferðatryggingum áður en lagt er af stað í ferðalag og athuga að allir fjölskyldumeðlimir séu vel tryggðir.

Þjófnaður

Varist að hafa peningaveski í rass- eða brjóstvösum. Hengið ekki handtöskur á stólbak eða leggið frá ykkur. Takið ekki með ykkur verðmæti á ströndina og passið eigur ykkar alltaf vel. Mælt er með því að hótelgestir leigi öryggishólf og geymi öll verðmæti og vegabréf í þeim.

Skemmtilegar heimasíður

Upplýsingar um Antalya

Meira um Antalya



Powered by ODIN