Guðný Margrét Emilsdóttir

Guðný Margrét Emilsdóttir fararstjóri

Guðný Margrét er fædd og uppalin í Reykjavík, tók stúdentspróf úr máladeild Verzlunarskóla Íslands 1984. Eftir stúdentspróf lá leiðin í Háskola Íslands, þar sem hun lagði stund a ítölsku og þýsku. En ekki leið á löngu þar til útþráin gerði vart við sig og varð Ítalía fyrir valinu. Guðný hefur meira og minna alið manninn i þessu stórkostlega landi sl. 20 ár. Hún var eitt ár við ítölskunám í Universita per Stranieri í miðaldaborginni Perugia og þaðan varð ekki aftur snúið! Guðný hélt til Mílanó í arkitektanám árið 1988 og þaðan í Leiðsöguskóla Íslands þar sem hún tók leiðsögumannaréttindi. Guðný segir að mennt sé ekki aðeins máttur, heldur geri hún manninn að betri manneskju.

Guðný Margrét vann á ferðaskrifstofu Útsýnar veturinn 1986-1987 og fór eftir það til Portúgals sem fararstjóri, þar sem hún uppgötvaði köllun sína - að vera leiðsögumaður og fararstjóri á erlendri grund. Guðný hefur unnið mjög mikið fyrir Úrval-Útsýn sem fararstjóri, í sér- og sólarferðum á Ítalíu og Tyrklandi, auk þess sem hún hefur unnið í Portúgal, Spáni, Grikklandi, Slóveníu, Túnis og Marokkó. Einnig hefur hún lóðsað Ítalska ferðamenn um Ísland og Grænland.

Helsta áhugamál Guðnýjar eru ferðalög - hún segir að ekkert komi í stað þekkingar á ólíkri menningu, sögu og fólki frá öðrum löndum. Listfræðin á einnig hug hennar og hjarta og hún notar ferðalög gjarnan til að svala þorsta sínum í þeim efnum. Auk þess notar hún hvert tækifæri til að hreyfa sig aðeins á ferðalögum og reynir að virkja farþegana í smá hreyfingu líka. Einkunnarorð hennar eru: Mens sana in corpore sano.

Guðný hefur unnið mikið við þýðingar og túlkastörf samhliða fararstjórn. Hún hefur aðstoðað ítalska fjölmiðla og ítalska landsliðið þegar þeir sóttu Ísland heim. Einnig túlkaði hún fyrir fyrrverandi forseta Ítalíu í opinberri heimsókn Halldórs Blöndals, forseta Alþingis til Ítalíu.



Powered by ODIN