Tyrkland - Marmaris og Içmeler
Tyrkland hefur slegið í gegn og íslendingar sækja þangað aftur og aftur.
Marmaris
Marmaris er gamall bær umvafinn fjöllum. Hann hefur yfir sér evrópskt yfirbragð og er ákaflega líflegur í alla staði. Marmaris er einn af fallegustu bæjum Tyrklands. Í fallegri bátahöfn sem er sú stærsta í landinu liggja þúsundir báta af öllum stærðum og gerðum yfir sumartímann og þessi litli bær með sína 25.000 íbúa breytist í alþjóðlegan ferðamannabæ.
Marmaris að kvöldlagi er paradís fyrir lífsglaða ferðamenn. Veitingastaðir og barir eru meðfram ströndinni og við höfnina. "Barstrætið" er 300 metra langt og þröngt stræti í gamla bænum. Í fallega uppgerðum húsum eru barir, veitingastaðir og dansstaðir á báðar hendur svo langt sem augað eygir. Barstrætið endar við Yesil Marina og þeir sem kjósa meiri rólegheit geta auðveldlega fundið notalegan veitingastað við höfnina þar sem skúturnar geisla í roða kvöldsólarinnar.
Tilvalið er að fara í gönguferð meðfram hinni löngu strandlengju eða á höfninni. Útimarkaðir og yfirbyggðar göngugötur með fjölbreyttum og glæsilegum verslunum og litlum veitingastöðum. Í gjafavöruverslunum, sem og öðrum verslunum, er skemmtilegt að versla með leður, teppi, skartgripi og fleira af því sérstæða sem þetta land hefur uppá að bjóða.
Fallegar og hreinar strendur, góðir gististaðir, veitingastaðir og þjónusta við ferðamenn er framúrskarandi. Tyrkir eru einstaklega gestrisnir og taka á móti ferðamönnum sem góðum gestum. Í Marmaris er yndislegt að lifa lífinu og njóta sumarleyfisins með fjölskyldunni.
Içmeler
Aðeins 8 kílómetra frá Marmaris er Içmeler - rólegur og skemmtilegur strandbær. Veitingastaðir eru á hverju strái í bænum og við ströndina og bjóða þeir bæði tyrkneskan og alþjóðlegan mat. Maturinn er undantekningalítið góður, verðið hagstætt og þjónusta heimamanna frábær. Í Içmeler er fullt af góðum verslunum og hinn vikulegi útimarkaður, sá sami og í Marmaris, er sívinsæll hjá ferðamönnum.
Ströndin við Içmeler er einstaklega falleg og hrein og þar bjóðast alls konar leiktæki fyrir allan aldur. Í flæðarmálinu er lítil bryggja og þar leggja að taxi-bátar sem hægt er að nota til að skjótast til Marmaris.
Auðvelt er að komast frá Içmeler til Marmaris, eftir göngustíg sem liggur meðfram ströndinni, í dolmus-vagni eða dolmus-bát.
Içmeler er staður hinna vandlátu sem vilja aðeins það besta í aðbúnaði, þjónustu og umhverfi. Í Içmeler er allt til staðar til að mæta væntingum þeirra sem gera kröfur um skemmtilegt frí í fögru umhverfi með þjónustuglöðum heimamönnum.
Gott að vita
Gott að vita áður en haldið er til Marmaris og Içmeler