AÐSTAÐA
Club Anastasia er staðsett um 1,5 km frá miðbæ Marmaris. Gott íbúðahótel sem hentar sérstaklega vel fyrir fjölskyldufólk þar sem mikið er í boði fyrir yngri kynslóðina. Hótelið samanstendur af 4 byggingum og í líflegum garðinum eru 3 sundlaugar og stór sundlaugarbar með góðum sjónvarpskjá. Á hótelinu er starfræktur barnaklúbbur, einnig er mjög góð leikaðstaða fyrir börnin. Skemmtidagskrá er á kvöldin og því alltaf nóg um að vera. Á hótelinu er veitingarstaður, "Bella Blu", "Orange Bar" supermarkaður, skartgripaverslun, líkamsræktaraðstaða og tyrkneskt bað. Gestamóttakan er opin á daginn og næturvörður er yfir nótt.
VISTARVERUR
Rúmgóðar, bjartar og snyrtilegar íbúðir með einu svefnherbergi, stofu og eldhúskrók. Allar íbúðir eru með loftkælingu í stofu og flísum á gólfi. Svalir eru á öllum íbúðum með borði og stólum. Baðherbergi er lítið með sturtu. Stúdíó íbúðirnar eru ýmist með rúmum eða svefnsófa og taka hámark 2 fullorðna og 1 barn í. Íbúðirnar sem eru með einu svefnherbergi taka hámark 4 í íbúð (3 fullorðna og eitt barn). Loftkæling er í íbúðunum og er innifalin
Bygging
- Byggt árið (2001)
- Fjöldi hæða (4)
- Fjöldi íbúða (126)
- Stjörnur (3)
- Gestamóttaka (Já)
- Lyftur (true)
Aðstaða
- Barnalaug (Já)
- Garður (Já)
- Heilsulind (Já )
- Líkamsrækt (Já)
- Matvöruverslun (Í göngufæri )
- Sauna (Já)
- Sólbekkir (Já)
- Billjarð (Já)
- Veitingastaður (Já)
- Bar (true)
Annað
- Fjarlægð frá strönd (800 m)
Vistarverur
- Hárþurrka (Já)
- Sími í íbúð (Já)
- Ísskápur (Já)
- Kaffivél (Já)
- Svalir/Verönd (Já)
- Öryggishólf (Já gegn gjaldi )
- Sjónvarp í íbúð (Já)
- Loftkæling (Já)
Þrif Oft í viku
- Handklæðaskipti (2 x í viku )
- Skipt á rúmum (2 x í viku )
- Þrif (7 x í viku )