ALMENNT
Prestige er einfalt og snyrtilegt 3 stjörnu hótel staðsett aðeins 150 m frá ströndinni við aðalgötuna í Siteler hverfinu í Marmaris. Í boði eru rúmgóðar íbúðir með einu herbergi sem taka allt að 4 - 6 manns
AÐSTAÐA
Góður garður með sundlaug og barnalaug, góð sólbaðsaðstaða - fríir bekkir og sólhlífar, bar, leiksvæði fyrir börnin, einnig billiardborð, fótboltaspil og fl. Einu sinni í viku er grill-kvöld og þá eru sýningar í garðinum. Góður "a la carte" veitingastaður er á hótelinu og er hægt að borða inni og úti.
Gestamótakan er opin allan sólahringinn.
Um 2 km eru til miðbæjar og hafnarinnar í Marmaris og stoppa dolmusar (litlir strætóar) fyrir framan hótelið.
VISTARVERUR
Íbúðirnar eru nýtískulega innréttaðar, málaðar í ljósum litum og nýlega standsettar. Í íbúðunum er eitt svefnherbergi og stofa, hárþurrka, sími, loftkæling (gegn gjaldi, 5 evrur á dag), öryggishólf (gegn gjaldi) og sjónvarp. Allar íbúðirnar taka allt að 6 - 8 manns, ef það eru 6 manns koma aukabeddar inní íbúðina. Allar íbúðirnar eru með svölum/verönd og snúa út í garð.
Á sama stað eru í boði 20 m2 hótelherbergi með hálfu fæði - sjá Prestige Hotel.