Gott að vita um Tyrkland
Ferðatilhögun, fararstjórn og öryggisreglur
Flogið er í beinu leiguflugi til Milas. Flugið tekur 5 ½ klst. Þaðan er ekið í loftkældri rútu til Marmaris og tekur ferðin um 3 klst.
Íslenskir fararstjórar okkar taka á móti farþegum á flugvelli og eru þeim innan handar allan dvalartímann.
Akstur til og frá flugvelli erlendis er valkvæð þjónusta. Þeir sem vilja nýta sér aksturinn erlendis bóka og fullgreiða þjónustuna hér heima áður en lagt er af stað í ferð.
Við bendum farþegum sem þurfa á súrefni að halda um borð í millilandaflugi að kynna sér reglur viðkomandi flugfélags.
Handfarangur
Flugmálastjórn hefur gefið út bækling með reglum um handfarangur (pdf) .
Gjaldmiðill, verðlag og verslun
Gjaldmiðill er tyrknesk líra (TRY) en víða er tekið við evrum. Reiknaðu út gengið á Oanda.
Greiðslukort eru tekin víðast hvar nema í litlum veitingahúsum og verslunum. Hraðbankar í miðbænum eru opnir allan sólarhringinn.
Verslun í Marmaris er hreinasta skemmtun. Bærinn er fullur af basörum, útimörkuðum og götusölum. Einkum er hagkvæmt að kaupa tyrknesk teppi og dregla, skinn- og leðurvörur, gull- og silfurvörur, merkjavörur í fatnaði, skó, klukkur, kryddvörur og handklæði. Enda þótt fast verð sæki á er enn þjóðarsiður að prútta.
Hefð er fyrir þjórfé á veitingastöðum (5-10%) en á ódýrari veitingastöðum er ekki nauðsynlegt að gefa þjórfé. Á einstaka veitingahúsum er þjórfé, 10 - 15% innheimt á reikningi. Það er vinsælt en ekki nauðsynlegt að bæta 5-10% við uppgefið verð. Mælt er með að bæta dálitlu við uppgefið verð í leigubílum.
Land og áfangastaður
Tyrkland er 780.000 km2 með um 73 milljónir íbúa. Langstærstur hluti landsins tilheyrir Asíu en 3% þess eru Evrópumegin við Bosporussund. Við vogskorna strandlengjuna eru sumrin heit og afar sólrík en vetur mildir með talsverðri úrkomu. Á hálendinu eru vetur harðir en sumur heit og þurr. Í austurhluta landsins er hið sögufræga fjall Ararat (5.137m).
Frá Dalaman flugvelli til Marmaris eru 110 km. Á milli Marmaris og Içmeler eru. 7-8 km.
Í strandbænum Marmaris og nágrannabænum Içmeler búa rúmlega 30.000 manns allt árið en íbúafjöldinn margfaldast á ferðamannatímanum. Strandlengjan í Marmaris er margir kílómetrar á lengd, baðstrendur langar og mjóar með fremur grófum, gulum sandi. Sjávarfalla gætir nánast ekkert.
Læknisþjónusta og aðstoð í neyðartilfellum
Neyðarlínan í Tyrklandi er 112. Fararstjórar útvega læknisaðstoð og veita nánari upplýsingar.
Læknaþjónusta – ARMUTALAN SJÚKRASTÖÐIN er opin allan sólarhringinn og þar er læknisþjónusta og bráðamóttaka.
Matur og drykkur
Tyrknesk matarhefð er ótvírætt meðal hinna merkustu í heimi en ólík mörgum frægari hefðum að því leyti að erfitt er að benda á eitthvað eitt sem einkennir hana. Fjölbreytni og ferskleiki eru allsráðandi og áhrif sótt í austur jafnt sem vestur.
Veitingastaðir heimamanna heita "lotankas" og eru skemmtilegir heim að sækja. Nærri ströndinni er mikið úrval skyndibitastaða, sjávarréttastaða og prýðilegra alþjóðlegra veitingastaða. Í hádeginu er vinsælt að fá sér kjúkklingakebab í pitabrauði eða ljúffenga tyrkneska pizzu. Internetkaffihús eru víða í Marmaris og Içmeler.
Ónæmisvarnir
Landlæknisembættið veitir upplýsingar um hvaða bólusetningar eru æskilegar ef ferðast skal til Tyrklands. Hafa þarf nokkurn fyrirvara á bólusetningum. Einnig er að finna upplýsingar á nýjum vef, Ferðavernd .
Samgöngur
Smávagnar þeysa um götur Marmaris og Içmeler og heita Dolmus. Þeir stoppa þegar þú veifar og eru ódýr og skemmtilegur ferðamáti. Leigubílar eru ódýrir og nóg af þeim.
Bílaleigur biðja um íslenskt ökuskírteini og lágmarksaldur leigutaka er 18 ár. Bifhjólaleigur eru margar og hafa létt bifhjól (“Vespur”) til leigu fyrir þá sem hafa ökuskírteini. Einnig má leigja reiðhjól.
Það er ekki fyrir hjartveika að aka um í Tyrklandi en ekki eins erfitt og virðist við fyrstu sýn. Heimamenn eru almennt tillitssamir bílstjórar þó þolinmæðina bresti stundum. Akreinar eru þó fremur til leiðbeiningar en til að fara eftir.
Sími og rafmagn
Auðvelt er að hringja úr símaklefum og nota símkort sem hægt er að kaupa á pósthúsum og hjá blaðasölum. GSM þjónusta er góð en mjög dýr.
Rafmagnið er 220-240 volt og tenglar flestir eins og á Íslandi.
Skemmtun og íþróttir
Á Marmarisflóa er hverskyns vatnasport fyrir alla aldurshópa. Köfunarskólar eru við höfnina, ásamt bátum af öllum stærðum og gerðum sem leigðir eru út til lengri eða skemmri tíma. Tennisvellir eru víða og miðnæturknattspyrna er í miklu uppáhaldi. Þeir sem eiga í sæmilegt lið ættu að biðja fararstjóra að útvega verðuga mótherja í landsleik.
Næturlíf er fjölbreytt með úrval af börum og veitingastöðum við höfnina, strandgötuna og Barstræti í Marmaris. Reykingar eru víðast leyfðar og oft boðið upp á vatnspípur á kaffihúsum.
Veðrið
Meðfylgjandi tafla sýnit meðalhita en hiti getur verið breytilegur frá ári til árs.
|
Veðrið í Marmaris
|
| Hitastig |
maí |
júní |
júlí |
ágúst |
sept. |
okt. |
| Á daginn |
24 |
28 |
31 |
31 |
28 |
24 |
| Á nóttunni |
16 |
20 |
22 |
23 |
21 |
17 |
| í sjónum |
19 |
22 |
24 |
25 |
24 |
22 |
Ómissandi í farangurinn
Sundföt, sólarárburður og góða skapið.
Tímamismunur
Bætið 3 klst. við íslenskan tíma. Upplýsingar um tímamismun í heiminum.
Skemmtilegar heimasíður
Upplýsingar um Marmaris
Skemmtileg Marmaris síða
Meira um Marmaris
Upplýsingar um Icmeler
Góðar upplýsingar um Marmaris
Athugið að neðangreind verð eru lauslega áætluð og aðeins til viðmiðunar. Verð er í tyrkneskum lírum (TRY), en umreiknað í íslenskar krónur (ISK) á gengi 28. apríl 2009.
|
|
Verð |
| Vara |
Magn |
TRY |
ISK |
|
Í stórmarkaðnum
|
| Mjólk |
1 lítri |
1,50 |
121 |
|
Vatn
|
1 lítri
|
0,75 |
60
|
|
Kóka kóla
|
1 lítri
|
2,00 |
162
|
|
Bjór (innlendur)
|
1 dós
|
2,50 |
200
|
|
Bjór (innlendur)
|
ein kippa
|
12,00 |
950 - 1.250
|
|
Brauð
|
1 stk.
|
0,75 |
60
|
|
Borðvín (innlent)
|
1 flaska
|
20,00 |
1.600
|
|
|
|
Út að borða
|
|
Hamborgari
|
1 stk.
|
7,00 |
600
|
|
Franskar
|
|
7,00 |
600
|
|
Pizza
|
33 cm
|
18,00 |
1.500
|
|
Bjór
|
Glas
|
6,00 - 8,00 |
500 - 650
|
|
Fiskréttur
|
|
20,00 |
1.600
|
|
Kjötréttur
|
|
25,00 - 30,00 |
2.000 - 2.500
|
|
Borðvín (innlent)
|
flaska
|
25,00 - 55,00 |
2.000 - 3.500
|
|
|
|
Á ströndinni
|
|
Sólbekkur og sólhlíf *)
|
|
5,00 - 8,00 |
400 - 650
|
Gjaldmiðillinn í Tyrklandi er tyrknesk líra (TRY). Þú getur reiknað gengið á Oanda.