Skoðunarferðir
Skráning í skoðunarferðir fer fram í viðtalstíma og þjónustusíma fararstjóra og er greitt fyrir þær hjá fararstjóra.
Skoðunarferðir eru með íslenskum fararstjóra ef þátttaka er næg.
Athugið að ferðir geta fallið niður, þær breyst eða aðrar komið í staðinn, og að sumar ferðir geta verið háðar lágmarksþátttöku.
Rhodos
Heilsdagsferð
Komdu með til Rhodos, 2 heimsálfur á einum degi! Ekið niður að höfn og farið í gegnum vegabréfaeftirlit áður en sest er um borð í svifnökkvann, sem fer með okkur til Rhodos.
Ferðin tekur aðeins 50 mínútur og veitingar eru til sölu á leiðinni. Eyjan Rhodos er lítil og bærinn er fallegur og gaman að rölta um og teyga angan grískar menningar í einn dag.
Innifalið í verði: Akstur, sigling og íslensk fararstjórn.
Bæjar- og verslunarferð
Frábær leið til að kynnast Marmaris og Icmeler,- ekki aðeins umhverfinu heldur einnig verslun og þjónustu.
Við byrjum á því að ná áttum í Marmaris og Icmeler með því að fara í rútuferð um bæina og kynnast þeim betur. Síðan er haldið í leðurverslunina Fidan Center þar sem er m.a. hægt að fá leðurjakka, töskur, veski og belti.
Næsti áfangastaður er skartgripaverslunin Vouge, en þar eru í boði tyrkneskir munir úr gulli ásamt ýmsum steinum. Eftir kynningu geta farþegar verslað skartgripi úr gulli og silfri.
Dagurinn endar á Forum hótelinu þar sem kvöldverður er snæddur í boði verslunareigenda.
Innfalið: Rútuferð með íslenskri fararstjórn og kvöldverður. Drykkir eru ekki innifaldir.
Dalyan áin og Kaunos skjaldbökuströndin
Heilsdagsferð
Farið til Dalya í stórum báti, um 2 tíma sigling, og þegar þangað er komið er skipt yfir á minni báta sem geta siglt upp Dalyan ána.
Stoppað verður á skjaldbökuströndinni í um klukkustund áður en siglingunni verður haldið áfram upp ána. Dalyan áin á upptök sín í ósöltu stöðuvatni um 10 km frá sjó. Vatnið í ánni er allt að 5 - 6 metra djúpt.
Siglt er upp ána að stað þar sem boðið er uppá leirböð sem voru áður fyrr vinsæl meðal soldána Ottómantímabilsins.
Síðan er aftur siglt niður í átt til sjávar. Á leiðinni sést í forna grafreiti í klettunum frá tímum Licianna. Þessir grafreitir kallast Rak-tan og eru frá 4. öld fyrir krist. Grafreitirnir voru höggnir út af þrælum og höggnir hátt í klettana því "því guð var á himnum og hinir látnu nær guði".
Sólbað, leirböð, fornir grafreitir og sigling um ána þar sem stórmyndin The African Queen með Catherine Hepburn og Humphrey Bogart var kvikmynduð.
Innifalið: Sigling, hádegisverður og enskumælandi fararstjórn.
Efesos
Ein af þeim fornu borgum heimsins sem varðveist hafa hvað best. Einhver á að hafa sagt að í samanburði við Efesos sé Forum Romanum í Róm á Ítalíu sé aðeins steinhaugur og Akropolis í Aþenu aðeins venjulegt hús.
Það er alla vega öruggt að Efesos er ein af best geymdu fornborgum heims og saga borgarinnar er ekki bara mjög áhugaverð, heldur hreint út sagt töfrandi. Borgin er eingöngu byggð úr marmara og þó hún sé mörg þúsund ára gömul, er að finna þarr almenningssalerni og upphituð gólf í húsunum, sem enn eru að fullu varðveitt. Bókasafn borgarinnar er einnig mjög vel varðveitt og fagurt að auki sem og leikhúsið sem tekur um 25 þúsund áhorfendur.
Rétt fyrir utan Efesos má svo finna leifar eins af furðuverkum veraldar, Artemismusterið. Hús Maríu Meyjar er heldur ekki langt héðan og við kíkjum auðvitað í heimsókn á heimili hennar eins og ekkert sé. Kannski vill einhver fá að reyna vatnið þar, sem talið er að sé uppspretta heilbrigðis, fegurðar og auðlegðar.
Pamukkale
Eitt af þekktustu náttúrufyrirbærum Tyrklands er Pamukkale, en orðið merkir bómullarhöll. Ferðast er í strjálbýlinu í hverdagsleika Tyrklands, fjarri öllu amstri þéttbýlisins og ferðamannastaðanna við Miðjarðarhafsströndina og farið yfir Taurusfjöllin.
Hér eigum við stefnumót við stórbrotið landslag og merkilegar andstæður grósku og auðnar. Pamukkale lítur út í fjarska eins og hvítt fjall - úr bómull! Á leiðinni þangað verður skýrt út hvernig þessir kalksteinsklettar hafa myndast og orðið að náttúrulega mynduðum stöllum í fjallshlíðinni, eða eins konar flötum "útistöllum" í hringstigum kringum allt fjallið. Vatnið sem myndast í þessum stöllum hefur frá örófi aldri verið talið hin mesta heilsulind. Álitið er það sé einstaklega gott gegn gigt og hafi yngjandi áhrif á kvenþjóðina.
Við kalksteinshjallana eru svo leifar fornaldarborgarinnar Hierapolis. Frá Hierapolis og toppi fjallsins er svo einstakt útsýni yfir gróskumikinn og fagran Meanderdalinn. .
Tími mun gefast til að stinga sér í hina fornfrægu laug Kleopötru sem þarna er.
Á heimleiðinni verður komið við í samvinnubúi þar sem framleidd eru teppi og fáum við að fylgjast með framleiðslunni allt frá litun garnsins þar til teppið er tilbúið.
Sigling á Gökova-flóa
Sól, sjór og saltir vindar. Hljómar þetta ekki freistandi? Frá Marmaris verður ekið til smábæjar við Gökova-flóann þar stigið verður um borð í ekta tyrkneskan bát. Uppi er sóldekk með bekkjum en þeir sem vilja halda sig frá sólinni eiga þess kost að sitja í skjóli í matsalnum. Barinn verður opinn og þar er hægt að kaupa vín, gosdrykki eða vatn.
Siglt með Yusuf kapteini og áð við góðar baðstrendur við Gökova - og Incekumflóa. Þetta er góður dagur og kjörið tækifæri til að bæta við sólbrúnkuna. Munum þó að nota sólvörn!
Að margra mati er strandlengja Tyrklands með þeim fegurri og í þessari ferð verður áð í fallegum víkum og vogum. Túrkisblár sjórinn er ylvolgur og það er unaðslegt að láta sig fljóta áhyggjulaust um yfirborðið. Á meðan grillar kapteinninn sjálfur gómsætan mat sem borinn verður fram með salati og í eftirrétt eru ferskir ávextir.
Yfirleitt höfum við bátinn út af fyrir okkur og þá er það hópurinn sem heldur upp fjörinu. Komið verður til baka seinnihluta dags.
Tyrkneskt kvöld
Á þessu kvöldi gefst tækifæri til að smakka á hinum gómsæta og frábæra mat sem tyrkneska eldhúsið hefur upp á að bjóða. Þetta er gert með því að bjóða upp á "meze" sem samanstendur af ýmsum heitum og köldum forréttum, dæmigerðum tyrkneskum aðalrétti og ávöxtum viðkomandi árstíðar sem eftirrétti. Með þessu er boðið upp á ýmsa tyrkneska drykki með og án vínanda.
Boðið er upp á skemmtiatriði um kvöldið svo sem ekta tyrkneskan magadans fagurra meyja sem og danshóp í litríkum þjóðbúningum sem dansa tyrkneska þjóðdansa og skapa einstaka kvöldstemmingu. Þá er gólfið frjálst fyrir þá sem ekki ráða við sig í sætum sínum og vilja spretta úr spori á dansgólfinu!
Ógleymanlegt kvöld í tyrkneskum anda.