Ferenc Utassy
Ferenc Utassy (46) kom sem nýútskrifaður tónlistarmaður og kennari til Íslands árið 1987. Hann bjó á Íslandi í 8 ár, tók B.phil. próf við Háskóla Íslands og starfaði sem kórstjóri og kennari.
Ferðalög hafa verið hans æðstu draumar alveg frá bernsku, enda var ferðafrelsi fremur takmarkað á uppvaxtarárum hans í Ungverjalandi.
Frá árinu 1990 byrjaði hann smámsaman að leggja land undir fót og ferðaðist heimsálfa á milli. Þegar Ungverjar byrjuðu að streyma til Íslands starfaði Ferenc sem fararstjóri í mörgum hálendis- og hringferðum um landið.
Þegar hann flutti aftur til Búdapest frá Íslandi, veitti hann Íslendingum kærkomna aðstoð víðs vegar í Evrópu. Hann hefur starfað fyrir Úrval-Útsýn í rúman áratug sem fararstjóri í borgarferðunum í Mið-Evrópu, s.s. Prag, Vínarborg Ljubljana og Búdapest. Hann fór fyrir nokkurm árum með hóp Íslendinga á vegum Úrvals Útsýnar til Perú. Ferenc var útnefndur Ræðismaður Íslands í Ungverjalandi árið 2000 og sinnir þeim verkum enn í dag. Hann rekur ferðaskrifstofuna www.islandiatravel.eu , sem þjónar ungverskum ferðalöngum um allan heim og tekur á móti Íslendingum í Búdapest.