Playa de las Americas

Parque Santiago er mjög góð 3ja stjörnu íbúðagisting á besta stað á Playa de las Americas ströndinni. Þetta íbúðahótel er eitt eftirsóttasta hótel Tenerife. Hótelið er byggt í skemmtilegum spænskum stíl og í miðjunni er frábær sundlaugargarður. Mjög fjölskylduvænt hótel á besta stað. Farþegar geta lent í annaðhvort Parque Santiago 3 eða IV.

Framkvæmdir

Frá 09.01.2024 - 09.04.2024 verða 8 íbúðir teknar i gegn í Parque Santiago 3. Framkvæmdir verða mánu- til föstudags frá kl. 09:00-17:00, vinna sem krefst hávaða mun ekki hefjast fyrr en kl. 10:00. Einstaka laugardag verður unnið en þá í framkvæmdum sem framkvæma ekki hávaða.

Frá 01.04.2024 - 01.08.2024 verða 21 íbúð og gestamóttakan teknar í gegn á Parque Santiago 3. Framkvæmdir verða mánu- til föstudags frá kl. 09:00-17:00, vinna sem krefst hávaða mun ekki hefjast fyrr en kl. 10:00. Einstaka laugardag verður unnið en þá í framkvæmdum sem framkvæma ekki hávaða. Á þessu tímabili verður gestamóttakan í Parque Santiago IV.

Frá 02.09.2024 - 20.12.2024 verða íbúðir í Wing B teknar í gegn. Framkvæmdir verða mánu- til föstudags frá kl. 09:00-17:00, vinna sem krefst hávaða mun ekki hefjast fyrr en kl. 10:00. Einstaka laugardag verður unnið en þá í framkvæmdum sem framkvæma ekki hávaða.

 

GISTING 

Snyrtilegar íbúðir með einu svefnherbergi eða tveimur. Þær eru ýmist á einni eða tveimur hæðum. Í íbúðunum er eldhús, baðherbergi, stofa með svefnsófa og hægt er að leigja öryggishólf og viftur. Athugið að ekki eru lyftur í öllum byggingum. Íbúðir eru ekki með sundlaugar eða sjávarsýn.

 

AÐSTAÐA 

Hótelgarðurinn er að öllum líkindum einn sá stærsti sem finnst á svæðinu og er bæði mjög fallega hannaður og vel búinn. Í hjarta garðsins er 10.000 fermetra sundlaug auk minni lauga og mjög stórri sólbaðsaðstöðu. Börn í fylgd með fullorðnum hafa aðgang að báðum sundlauga görðunum hvort heldur er Parque Santiago 3 eða IV. Gestir geta keypt aðgang að þráðlausu interneti. 

VEITINGAR 

Á hótelinu eru átta veitingastaðir þar á meðal spænskur, ítalskur, kínverskur og alþjóðlegur veitingastaður. Einnig eru barir og kaffihús sem bjóða upp á léttan mat, framandi kokteila eða lifandi tónlist og skemmtiatriði.  

FYRIR BÖRNIN 

Frábært hótel fyrir fjölskyldur með börn. Í garðinum er nýlegt leiksvæði fyrir börn. Þar er að finna 7 vatnsrennibrautir ásamt ótal leiktækja. 

STAÐSETNING 

Skemmti- og veitingastaðir í öllum regnbogans litum og alþjóðlegar verslanir með ótrúlega fjölbreytt vöruúrval gera hótelið að eftirsóttum stað fyrir þá sem vilja vera í rólegheitum við strönd en jafnframt í göngufæri við iðandi mannlíf. 

AÐBÚNAÐUR Á PARQUE SANTIAGO 

Íbúðir 

Svalir 

Lítið eldhús 

Baðherbergi 

Svefnsófi 

Stór sundlaug 

Leiktæki 

Veitingastaðir 

Sundlaugarbar 

Lyftur(ekki í öllum byggingum) 

Vatnsrennibrautir 

 

 

Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar. 
 
Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum. 
 
Skemmtidagskrá getur verið árstíðarbundin.

Upplýsingar

Urb Santiago Avda. Litoral s/n Playa del las Americas

Kort