Las Palmas

Bex Holiday Homes er íbúðarhótel hannað í nútímalegum stíl. Hótelið er staðsett í hjarta Las Palmas þar sem stutt er í allt það helsta, s.s. verslunarmiðstöðvar, söfn og strendur. Hótelið er tilvalið fyrir fjölskyldur eða viðskiptaferðir. Bex Holiday Homes er staðsett beint fyrir framan Design Plus BEX Hotel og er hægt að fá sér morgunmat þar. Lyklar fyrir Bex Holiday Homes eru sóttir á Design Plus BEX Hotel. Það er ekki í boði akstur frá flugvelli að hóteli á þetta hótel.

GISTING

Íbúðirnar eru fallega innréttaðar í nýtískulegum stíl. Hægt er að velja á milli íbúðar með einu svefnherbergi, svítu með einu svefnherbergi og svítu með tveimur svefnherbergjum. Í íbúðum er að finna allt það helsta t.d. eldhús, ísskáp, sturtu, hárþurrku, síma, öryggishólf (gegn gjaldi), sjónvarp, frítt wi-fi og loftkælingu.

Á þessu hótel þarf að borga sérstaklega fyrir þrif: euro 20 evrur hvert skipti og rúmföt og handklæðakskipti 10 euro hvert skipti - greiðist beint til hótels.

AÐSTAÐA

Á þaki hótelsins er setusvæði þar sem hægt er að njóta sín við gott útsýni. Engin sundlaug er til staðar en góð sólbaðsaðstaða á þaki hótelsins og ströndin er í einungis um 6 mínútna göngufjarlægð.

AFÞREYING

Hægt er að slaka á á barnum og stutt í alla helstu þjónustu sem Las Palmas býður upp á.

VEITINGASTAÐIR

Engin veitingastaður er staðsettur á hótelinu enn gestir á Bex Deluxe Suites hafa aðgang að morgunverðarhlaðborði á hótelinu sem er staðsett beint á móti Design Plus BEX þar er ennig að finna tvo bari, annar í móttöku hótelsins og hinn á þaki þess. 

STAÐSETNING

Hótelið er í höfuðborginni Las Palmas og er stutt í alla þjónustu.

AÐBÚNAÐUR Á Bex Deluxe Suites

Verönd

 

Sólarverönd

 

Veitingastaður (morgunverðarhlaðborð) á Desing Plus Bex

 

Sólarhringsmóttaka

 

Tveir barir

 

Lestrar/slökunarsvæði

 

 

ATH

Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar. 

 

Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum.  Vinsamlegast athugið að internet er yfirleitt frekar hægt á gististöðum. 

 

Skemmtidagskrá getur verið árstíðarbundin. 

Upplýsingar

Calle José Franchy Roca, 1, 35007 Las Palmas Spánn

Kort