Corallium Dunamar by Lopesan Hotels er gott 4ra stjörnu hótel á besta stað á Ensku ströndinni, neðst í gilinu og rétt við ströndina. Stutt er í alla helstu þjónustu frá hótelinu og fjöldi veitingahúsa og verslana í næsta nágrenni. Hótelið var nýlega endurnýjað og er því í góðu standi.
GISTING
Hótelið samanstendur af tveimur byggingum, með fimm lyftum. Alls eru 273 herbergi sem eru fallega innréttuð með baðherbergi, svölum eða verönd, loftræstingu, sjónvarpi, síma, teketil, frítt wifi, öryggishólf (leiga) og minibar.
Athugið að einsmannsherbergi eru hvorki með svölum né verönd. Hægt að fá herbergi með góðu aðgengi fyrir hreyfihamlaða (vinsamlega hafið samband við söluskrifstofu okkar).
Superior herbergin eru með sjávarsýn og svalirnar snúa í átt að sjónum.
AÐSTAÐA
Garðurinn er fallegur og gróðursæll. Tvær sundlaugar eru í aðal byggingunni, sú þriðja er í norðurhluta byggingarinnar. Á sjöttu hæð í aðalbyggingu er stór sundlaug með frábært útsýni yfir sjóinn og er upphituð á veturna. Við allar sundlaugar er sólbaðsaðstaða. Gestir geta leigt handklæði við sundlaugina, gegn gjaldi. Hvert herbergi á sérmerkta bekki í garðinum. Frítt þráðlaust internet er í gestamóttöku.
AFÞREYING
Á hótelinu er boðið uppá Aerobic, líkamsrækt er á hótelinu. 2-3 km eru í Maspalomas golfvöllinn og Lopesan Meloneras golfvöllinn. Nóg er um að vera á ströndinni og hægt að fara í tennis (gegn gjaldi).
VEITINGAR
Val er um morgunverð og hálft fæði. The Food Garden er með hlaðborð á morgnanna, í hádeginu og á kvöldin. La Sal sundlaugarbarinn er með svalandi drykki. Mediterraneum er með góða miðjarðarhafsrétti og en Ancla er bar við móttökuna.
STAÐSETNING
Corallium Dunamar er á besta stað á Ensku ströndinni, neðst í gilinu rétt við ströndina. Frábært útsýni og stutt á ströndina.
AÐBÚNAÐUR Á HOTEL CORALLIUM DUNAMAR
Þrjár útisundlaugar
Sólbaðsaðstaða
Stutt í strönd
Sundlaugarbarir
Hlaðborðsveitingastaður
Snarlbar
Upplýsingar
C/Helsinki, 8, E-35100 Playa del Inglés, Gran Canaria
Kort