Krít

Krít er stærst grísku eyjanna og þeirra syðst. Sólin skín flesta daga ársins en hægur andvari af hafi gerir loftslagið eitt hið besta í Evrópu. Landslagið er fjölbreytt, há fjöll með snævi þöktum toppum, frábærar strendur og eyðivíkur, iðandi borgarlíf og hæglátt þorpslíf, fjöruga bari og rólegar sveitakrár.

 

 

Það yndislega við Krít er að daglegt líf eyjaskeggja er nær ósnortið af ferðamönnum. Krítverjar eru stoltir af sínu og taka ferðamönnum opnum örmum um leið og þeir bjóða þér að njóta þess besta sem eyjan hefur upp á að bjóða. Á Krít er matur í hæsta gæðaflokki, ferskur fiskur og kjöt, grænmeti með hágæða ólifuolíu, gott vín og ostar sem bráðna í munni.

 

Flogið er til Chania sem er fyrrum höfuðstaður Krítar og önnur stærsta borg eyjunnar. Gamli bæjarhlutinn innan borgarmúranna ber svip af Feneyjum og Tyrklandi með þröngum götum og byggingum frá fyrri öldum. Hjarta borgarinnar er gamla höfnin, umkringd líflegum og skemmtilegum börum þar sem er líf og fjör allan sólarhringinn, sérstaklega á sumrin. Andrúmsloftið er heillandi og staðurinn laðar til sín bæði íbúa og erlenda ferðamenn. Upp frá höfninni hlykkjast götur með fjölda verslana þar sem seldir eru minjagripir, matur og vín, skartgripir og handunnir listmunir. Út með ströndinni er að finna óviðjafnanlega sjávarréttastaði sem heimamenn flykkast á þegar þeir vilja gera sér glaðan dag. Við strandlengjuna milli Chania og Platanias er byggðin samfelld og þéttist í litlum bæjarkjörnum meðfram ströndinni. Þar eru gullnar strendur, kristaltær sjór, nýtísku hótel og fjölskyldureknar íbúðagistingar. Hér er að finna fjölda veitingastaða, bara og verslana þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi. Stærstur þessa bæja er Platanias.