Benidorm

Hótel Dynastic er  skráð 4* hótel en að okkar mati er þetta 3ja stjörnu hótel,  vel staðsett um 500 metra frá Levante ströndinni á Rincón de Loix svæðinu. Fjöldi veitingahúsa, skemmtistaða og verslana eru í næsta nágrenni. Á hótelinu er heilsulind með innisundlaug og í garðinum er sundlaug og sólbaðsaðstaða. Á hótelinu er mjög mikið líf og fjör og getur verið hávaðasamt fram eftir kvöldum.

GISTING 

Herbergin eru lítil, með svölum eða verönd. Herbergin eru öll með síma, sjónvarpi, öryggishólfi (gegn gjaldi) og baðherbergi, með baðkari eða sturtu, herbergin eru loftkæld og hægt er að fá aðgang að þráðlausu interneti gegn gjaldi. Yfir vetrarmánuðina er kynding í herbergjum.

 

AÐSTAÐA/ AFÞREYING

Á Hótel Dynastic er heilsulind með líkamsræktaraðstöðu, nuddpotti ásamt snyrti- og nuddstofu. Góð aðstaða er við útisundlaugina og leiksvæði fyrir börn.

Skemmtidagskrá er yfir sumartímann fyrir börn og fullorðna. Á kvöldin ýmist troða skemmtikraftar upp eða í boði er lifandi tónlist. Stutt er í góða golfvelli.

 

VEITINGAR

Í boði er að kaupa  hálft fæði sem er morgunverður og kvöldverður ( ekki drykkir) , eða fullt fæði sem er morgunverður, hádegisverður og kvöldverður, (ekki drykkir).  

FYRIR BÖRNIN

Barnadagskrá er á hótelinu og barnaklúbbur fyrir 4-12 ára. 

STAÐSETNING 

Hótelið er vel staðsett um 500 metra frá Levante ströndinni á Rincon de Loix svæðinu á Benidorm. Fjöldi veitingahúsa, skemmtistaða og verslana eru í næsta nágrenni. 

AÐBÚNAÐUR Á HOTEL DYNASTIC 

Útisundlaug 

Innilaug 

Heilsulind 

Líkamsræktaraðstaða

Sólbaðsaðstaða 

Gufubað 

Heilsulind

Nuddpottur

Leikvöllur 

Leikjaherbergi 

Skemmtikraftar 

Skemmtidagskrá 

Barnaklúbbur 

Lifandi tónlist 

Svalir/verönd 

Sjónvarp

Baðherbergi 

Öryggishólf (gegn gjaldi) 

Veitingastaður 

Snarlbar 

ATH
Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar. 
 
Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum.  Vinsamlegast athugið að internet er yfirleitt frekar hægt á gististöðum.
 
Á þeim hótelum þar sem allt er innifalið getur verið að hótel takmarki heimsóknir til gesta sinna til þess að standa vörð um þjónustu sína. Þó taka hótel misjafnlega á þessu. Gott er því að hótelgestir ræði við starfsfólk áður en gestum er boðið í heimsókn til þess að fyrirbyggja óánægju og vandræði.
 
Skemmtidagskrá getur verið árstíðarbundin.
 
Boðið er uppá akstur milli Alicante flugvallar og gististaða á Benidorm, Albir, Altea og Calpe á öllum flugdögum yfir sumartímann. Ef ekki fæst næg þátttaka áskiljum við okkur rétt á því að fella aksturinn niður. Farþegar verða látnir vita með nokkra daga fyrirvara ef um slíkt er að ræða.
 
Athugið: Stóra úti-sundlaugin verður lokuð vegna viðhalds 11.des -  18.des 2022

Upplýsingar

Avenida Ameltla de Mar 15, Benidorm, Costa Blanca, Spain

Kort