Benidorm

Flamingo Oasis er 4ra stjörnu hótel staðsett í 15 mínútna gangi frá Levante ströndinni á Benidorm. Gott aðgengi er fyrir hjólastóla á hótelinu. Hótel Flamingo Oasis er við hliðina á hótelinu Melía Benidorm

GISTING 

Hótelið er staðsett í nýrri hluta Benidorm og er stutt í alla þjónustu. Herbergin eru rúmgóð, snyrtileg og með svölum. sima, loftkælingu, gervihnatta sjónvarp, minibar og wi-fi ( aukagjald) Baðherbergi eru með baðkari/sturtu og hárþurrku. Club herbergin eru  eingöngu fyrir 18 ára og eldri og eru á efstu hæðunum.  Gestir Club herbergja hafa aðgang að roof-top sundlaug og Club Lounge.

AÐSTAÐA 

Í garðinum er sundlaug, bar og veitingastaður. 

AFÞREYING

Á hótelinu er einnig líkamsræktaraðstaða, mini golf, borðtennisborð, billiard og leikherbergi.

VEITINGASTAÐUR 

Á hótelinu er veitingastaður, snakk bar og hlaðborðstaður. Athugið að hótelið býður eingöngu uppá allt innifalið. 

AÐBÚNAÐUR

Útisundlaug

Innisundlaug   

Handklæðaleiga

Sólbaðsaðstaða

Barnadagskrá 

Sólarhringsmóttaka 

Töskugeymsla 

Frítt internet 

Líkamsræktaraðstaða

Veitingasstaður 

ATH

Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar. 
 
Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum.  Vinsamlegast athugið að internet er yfirleitt frekar hægt á gististöðum.
 
Á þeim hótelum þar sem allt er innifalið getur verið að hótel takmarki heimsóknir til gesta sinna til þess að standa vörð um þjónustu sína. Þó taka hótel misjafnlega á þessu. Gott er því að hótelgestir ræði við starfsfólk áður en gestum er boðið í heimsókn til þess að fyrirbyggja óánægju og vandræði.
 
Skemmtidagskrá getur verið árstíðarbundin.
 
Boðið er uppá akstur milli Alicante flugvallar og gististaða á Benidorm, Albir, Altea og Calpe á öllum flugdögum yfir sumartímann. Ef ekki fæst næg þátttaka áskiljum við okkur rétt á því að fella aksturinn niður. Farþegar verða látnir vita með nokkra daga fyrirvara ef um slíkt er að ræða.

Upplýsingar

Avenida Severo Ochoa, 3, 03500 Benidorm, Alicante, Spánn

Kort