GHT Oasis Tossa er 4 stjörnu hótel í Tossa de Mar. Ströndin er einungis í 800 metra fjarlægð frá hótelinu og miðja Tossa de Mar í um 5 min fjarlægð. Hótelið er fjölskylduvænt og býður upp á útisundlaugar fyrir bæði börn og fullorðna og SPA. ATH að enskumælandi fararstjóri er á svæðinu.
GISTING
Rúmgóð herbergi með loftkælingu, síma, sjónvarpi, hárþurrku og öryggishólfi(gegn gjaldi). Hægt er að óska eftir því að leigja ísskáp inná herbergið. Í boði er tvíbýli eða tvíbýli með sundlaugarsýn. Í herbergjunum eru tvö rúm sett saman en hægt er að óska eftir tvíbreiðu rúmi. Hægt er að velja á milli tvíbýlis með morgunverði, hálfu fæði eða fullu fæði.
AÐSTAÐA
Fín sólbaðsaðstaða í garðinum, leikvöllur, sundlaugar fyrir börn og fullorðna, SPA með m.a. innisundlaug, tyrknesku baði, líkamsrækt og heitum potti. Hægt er að fara í nudd gegn aukagjaldi. Á hótelinu er frítt Wi-Fi ásamt tölvuhorni.
AFÞREYING
Hótelið býður upp á daglega skemmtidagskrá fyrir alla aldurshópa, lifandi tónlist, dansatriði og diskótek svo dæmi séu tekin. Vikulega er síðan haldin grillveisla utandyra með lifandi tónlist og fjölbreyttri skemmtidagskrá.
VEITINGASTAÐIR
Á hótelinu er bar og hlaðborðsveitingastaður þar sem gestir geta fylgst með kokkum elda matinn sem borinn er fram.
FYRIR BÖRNIN
Hótelið er mjög fjölskylduvænt og býður upp á krakkaklúbb, leikvöll og afþreyingu fyrir börnin. Einnig er hægt að fá barnarúm og barnastóla fyrir börnin.
STAÐSETNING
Hótelið er vel staðsett nálægt miðbæ Tossa de Mar, 800 metra frá ströndinni og stutt frá veggjum bæjarins. Um einn og hálfan tíma tekur að keyra frá Barcelona flugvelli og á hótelið.
AÐBÚNAÐUR Á GHT OASIS TOSSA
Útisundlaug
Sólbaðsaðstaða
Veitingastaður
Morgunverður/hálft fæði/fullt fæði
Barnalaug
Nuddpottur
Gufubað
Heilsulind
Leikvöllur
Skemmtidagskrá
Loftkæling
Svalir
Öryggishólf (gegn gjaldi)
Baðherbergi
Ískápur inná herbergi (gegn gjaldi)
ATH
Upplýsingar
C/Lope Mateo, 3 Tossa de Mar Costa Brava, Spain
Kort